
Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamaður og siðfræðingur, er gestur í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Einni Pælingu, sem Þórarinn Hjartarson stjórnar.
Ræðir Stefán meðal annars mögulega inngöngu Íslandi í ESB en í viðtalinu greinir hann frá því að hann sé talsvert hrifnari af samstarfi við Bandaríkin.
„Það er veruleiki sem við búum við, við getum ekki breytt því. Ísland mun aldrei hafa áhrif á þessa þróun mála. Það væri bara algjör sturlun að halda því fram að við gætum orðið einhverjir friðflytjendur eða mótunaraðilar og þetta. Og þá vaknar spurningin: Ef menn eru farnir að hnikkla vöðvana, hvar ætlum við að staðsetja okkur? Hvar ætlum við að finna skjólið?“ spyr Stefán.
„Þau segja í þingsályktunartillögunni að það sé rétt að gera það með inngöngu í Evrópusambandið og ég segi: Það er bara eins og að hoppa upp í rúm með fötluðu frænkunni sem er á leiðinni til sjúkraþjálfara vegna þess að hún veit að ekkert gengur hjá sér að laga mjöðmina eða bakið eða öxlina. Evrópa getur ekki varið sig.“

Komment