
Ben Cohen, meðstofnandi íssframleiðandans Ben & Jerry’s, var fjarlægður af lögreglu úr nefndarherbergi í öldungadeild Bandaríkjaþings á meðan hann mótmælti hervopnastuðningi Bandaríkjanna við Ísrael og hörmungunum á Gaza.
Mótmælendur trufluðu þingfund á miðvikudag á meðan Robert F. Kennedy Jr., heilbrigðis- og mannauðsmálaráðherra, var að bera vitni fyrir þingnefnd.
Myndband sem deilt var á samfélagsmiðlum sýndi Cohen vera leiddan út úr þingbyggingunni með hendur bundnar fyrir aftan bak.
„Þingið drepur fátæk börn á Gaza með því að kaupa sprengjur, og borgar fyrir það með því að sparka börnum úr Medicaid (heilbrigðistryggingakerfi fátækra) í Bandaríkjunum,“ sagði hann í myndbandi eftir að einhver spurði hvers vegna hann væri að „láta handtaka sig“.
Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum, sem vísa í talsmann lögreglunnar við þingið (Capitol Police), var Cohen handtekinn og ákærður fyrir að valda þrengslum, hindrunum og ónæði. Fær hann væga sekt sem oft er beitt í málum tengdum borgaralegri óhlýðni í höfuðborginni Washington.
Talið er að sex aðrir mótmælendur hafi einnig verið handteknir og standi frammi fyrir alvarlegri ákærum, þar á meðal fyrir árás á lögreglumann.
BBC News reyndi að ná sambandi við Capitol Police en hefur ekki fengið staðfestingu frá þeim enn.
Ben & Jerry’s hefur lengi verið þekkt fyrir að taka afstöðu í samfélags- og stjórnmálum allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1978 af Cohen og Jerry Greenfield.
Fyrirtækið hefur meðal annars stutt baráttur fyrir réttindum LGBTQ+ fólks og gegn loftslagsbreytingum.
Árið 2000 keypti alþjóðlegi neytendavörurisinn Unilever Ben & Jerry’s. Samkvæmt samrunasamningi fékk Ben & Jerry’s sérstaka, sjálfstæða stjórn sem hefur það hlutverk að verja gildi og stefnu vörumerkisins.
En tengslin milli Unilever og Ben & Jerry’s hafa verið stirð undanfarin ár. Samskiptin versnuðu sérstaklega árið 2021 þegar Ben & Jerry’s tilkynnti að fyrirtækið myndi hætta sölu á Vesturbakkanum.
Þessi ákvörðun leiddi til lagalegs ágreinings, sem enn stendur yfir.
Aðspurður um athafnir Cohenar, sagði talsmaður Unilever við BBC News:
„Ben Cohen tjáir sig sem virkur samfélagsþegn um þau mál sem hann telur persónulega mikilvæg. Þessar aðgerðir eru hans eigin og ekki á vegum Ben & Jerry’s eða Unilever.“
Í mars höfðaði Ben & Jerry’s mál gegn Unilever og sakaði fyrirtækið um að hafa rekið forstjóra sinn, David Stever, vegna ágreinings um pólitískar baráttur vörumerkisins.
Þá sagði talsmaður Unilever að fyrirtækið væri „svekkt yfir því að trúnaðarsamtal varðandi starfsferil starfsmanns hafi verið gert opinbert“.
Átökin hafa aukist á síðasta ári þar sem Ben & Jerry’s hefur lagt áherslu á að styðja vopnahlé á Gaza.
Komment