1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

9
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

„Fyrirhugaður leikur er staðfesting á því að þjóðarmorð sé ásættanlegt“

Séra Bjarni Karlsson er afar óánægður með að landslið Íslands ætli að spila gegn Ísrael annað kvöld og segir þögnina í kringum málið vera ærandi

Bjarni Karlsson prestur
Séra Bjarni KarlssonÓsáttur við að Íslendingar spili gegn Ísrael
Mynd: Aðsend

Þriggja stiga þögn er yfirskrift greinar eftir prestinn og siðfræðinginn Bjarna Karlsson, þar sem hann gagnrýnir að við Íslendingar ætlum okkur að spila gegn landsliði Ísraels annað kvöld á Evrópumótinu í körfubolta:

„Hugsaðu þér ef þú vaknaðir einn morgunn og áttaðir þig á því að íþróttir væru ekki til og hefðu aldrei verið. Þig hefði bara dreymt þessa vitleysu.“

Bjarni vill ekki hugsa þá hugsun til enda hvað gerast myndi ef íþróttir væru hreinlega ekki til eða jafnvel bannaðar:

„Hver kann ekki sögur af fólki sem átt hefur ungmennafélaginu sínu eða íþróttafélaginu allt að þakka? Þar fékk það uppörvun, styrk og veganesti út í lífið sem veitti því kjark og úthald.“

Bætir þessu við:

„Á heimasíðu Íþróttasambands Íslands las ég frábæra umfjöllun um börn með yfirskriftinni Allir með - Farsælt samfélag fyrir alla. Með tilvísun í ályktun frá Sameinuðu þjóðunum er lögð sú áhersla að öll börn skuli eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.“

Bjarni segist vita að íþróttir móti fólk til góðs og í „sálgæslustarfi mínu hef ég margoft séð hvernig reynt íþróttafólk byggir árangur sinn stig af stigi. Íþróttir kenna fólki að þrauka án þess að örvænta. Þær kenna okkur að vinna með öðrum. Grípa boltann og gefa hann áfram. Fagna velgengni og þola ósigra með reisn. Þess vegna otum við börnum okkar í átt að hverfisfélaginu og vonum að áhuginn vakni. Íþróttalífið í landinu er mál okkar allra og þegar landsliði er teflt fram á alþjóðlegu móti tekur þjóðarsálin undir þjóðsönginn svo jafnvel blika tár á hvarmi.“

Hann segir líka að íþróttagreinar séu margar en íþróttin er ein:

„Innbyrðis erum við ólík en þjóðin er ein. Því er það ekkert einkamál hvar og hvenær við teflum fram okkar landsliðum. Þegar kvennalandslið í handbolta lék við Ísraela í aprílbyrjun, var mikill samhljómur meðal okkar í þá veru að þátttakan væri siðferðilega vafasöm. Landsliðskonur fundu sína leið til að andæfa og sýna stuðning við Palestínu með því að halda fyrir merki ísraelsks innheimtufyrirtækis á treyjum sínum við hópmyndatöku.“

Bjarna finnst hins vegar þögnin sem ríkir um körfuboltalandsliðið og leikinn gegn Ísrael á morgun vera hreinlega ærandi:

„Nú, að áliðnu sumri, þegar alheimur veit að Ísraelsk stjórnvöld meina það sem þau hafa sagt allan tímann, að þau hyggist ryðja íbúum Gaza burt af landakortinu, þá leikur íslenskt landslið við Ísraela undir ærandi þögn.“

Og Bjarni spyr: „Hvað er tignarlegra en þriggja stiga karfa í hröðum leik?“

Segir einnig:

„Á sama tíma er lagt upp úr því að tryggja velferð þátttakenda sem best með því að árekstrar eru ekki beinn þáttur í leiknum enda reglur um snertingar skýrari en í mörgum öðrum hópíþróttum. Það að við skulum senda landslið í körfuknattleik til að leika við Ísraelsmenn rétt á meðan þeir keppast við að útrýma Gazabúum er skelfileg siðferðisleg uppgjöf. Fyrirhugaður leikur er í raun félagspólitísk staðfesting á því að þjóðarmorð sé ásættanlegt eftir allt saman.“

Bjarni segir að endingu að í „þessu máli og öðrum viðlíka sem upp munu koma þarf þjóðin að taka afstöðu í samvinnu við ÍSÍ. Afstöðuleysi okkar í hádeginu á morgun er gargandi þriggja stiga þögn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

„Kannski hefur núverandi formaður flokksins ekki skilið afstöðu Bandaríkjanna“
Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels
Heimur

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent
Innlent

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors
Heimur

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum
Heimur

Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra
Innlent

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti
Myndband
Sport

Ísraelskur landsliðsmaður rekinn af velli eftir umdeild fagnaðarlæti

„Hann þarf að læra af þessu.“
Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku
Sport

Mikael varð fyrir kynþáttaníði í Danmörku

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan
Sport

Ísraelar kalla Heimi heimskan og fáfróðan

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

Loka auglýsingu