
Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi hefur verið sagt upp og starfsemi fyrirtækisins hér á landi verður lögð niður, samkvæmt frétt RÚV.
Um 75 manns starfa hjá fyrirtækinu, flestir við forritun. Samkvæmt heimildum fréttastofu RÚV var starfsfólki tilkynnt í byrjun september að til stæði að hætta starfsemi NetApp á Íslandi.
Starfsfólki barst í gær rafrænn starfslokasamningur til undirritunar.
NetApp á Íslandi er dótturfélag evrópsks dótturfélags bandaríska tæknifyrirtækisins NetApp. Starfsemi fyrirtækisins hér á landi á rætur að rekja til íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Greenqloud, sem NetApp keypti árið 2017.
Greenqloud var stofnað árið 2010 og sérhæfði sig upphaflega í skýjaþjónustu sem knúin var með endurnýjanlegri orku.
