1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Áratugareynsla úr sjónvarpi, leikhúsi, Eurovision og dragheiminum sameinuð í nýju íslensku förðunarmerki þar sem sköpunargleði og frelsi eru í fyrirrúmi.

Just make up
„Hæ Halla, þetta er Skjöldur, eigum við að setja saman okkar eigin augnskuggapallettu?“
Mynd: Íris Hólm Jónsdóttir

Förðunarfræðingarnir Halla Þórarinsdóttir og Skjöldur Mio Eyfjord kynna íslenska förðunarmerkið Just Makeup. Vörumerkið byggir á áratugareynslu þeirra úr íslenskum og alþjóðlegum skemmtanabransa og er ætlað öllum sem vilja nota förðun á eigin forsendum. Vörurnar eru fáanlegar á Íslandi í netverslun Just Makeup.

Just Makeup hófst með einu símtali og einfaldri spurningu:

„Hæ Halla, þetta er Skjöldur, eigum við að setja saman okkar eigin augnskuggapallettu?“ Upphaflega ætluðu þau aðeins að þróa eina augnskuggapallettu. Hugmyndin stækkaði hins vegar fljótt og varð að heilli vörulínu með skýra sýn: Að gera vandaða förðun aðgengilega, skemmtilega og auðvelda í notkun.

„Við höfum bæði unnið við förðun í mörg ár og séð ólíkar hliðar hennar á sviði, baksviðs, í sjónvarpi, kvikmyndum, myndatökum og í daglegu lífi. Við vildum skapa gæðavörumerki sem setur fólki ekki reglur um hvernig það á að nota makeup. Þú mátt prófa, klúðra, þurrka af og byrja aftur. Það er einmitt hluti af gleðinni,“ segja Halla og Skjöldur, stofnendur Just Makeup.

Förðun fyrir alla – án óþarfa reglna

Grunnhugmynd Just Makeup er að förðun geti verið hvað sem hver og einn vill að hún sé. Hún getur verið smá maskari áður en farið er út úr húsi, rauður varalitur á venjulegum þriðjudegi eða fullkomið glam með glimmeri og augnhárum. Hún getur líka verið leið til að skapa karakter, prófa eitthvað nýtt, tjá sig eða einfaldlega gera eitthvað skemmtilegt fyrir sjálfa sig.

„Þú þarft ekki að vera atvinnuförðunarfræðingur, kunna allar reglurnar eða gera allt fullkomlega. Þú mátt vera náttúruleg í dag og fara í full-glam á morgun. Það er ekkert eitt rétt útlit. Þetta er bara makeup,“ segja stofnendurnir.

Markmið fyrirtækisins er að sameina fagleg gæði, gott notagildi, sköpunargleði og frelsi.

Vörurnar eru hugsaðar fyrir fólk á öllum aldri, óháð kyni, reynslu eða því hvers konar förðun það kýs.

Yfir 20 ár í íslenskum fjölmiðlum

Halla Þórarinsdóttir, forstjóri og meðstofnandi Just Makeup, lærði förðun árið 2005 og hóf störf hjá Stöð 2 áður en námi hennar lauk. Hún starfaði í meira en tvo áratugi hjá Stöð 2 og síðar Sýn við fjölbreytt verkefni í sjónvarpi og skemmtanabransanum.

Á ferlinum hefur Halla meðal annars unnið við Idol, X Factor, Ísland Got Talent, Eurovision, tónleika, tónlistarmyndbönd, sjónvarpsþætti, fréttir og fjölda íþróttaþátta. Hún hefur einnig unnið við karaktersköpun og gervi og borið ábyrgð á förðun heilla sjónvarpsþáttaraða.

Áhugi Höllu á förðun kviknaði strax í æsku. Móðir hennar starfaði sjálf sem sminka hjá Stöð 2 og Halla fylgdist ung með henni að störfum. Halla bjó einnig í Los Angeles í tvö ár, þar sem hún kynntist öðrum hliðum förðunarheimsins, sótti viðburði hjá stórum snyrtivörumerkjum og vann að verkefnum innan alþjóðlegs skemmtanabransa. Undanfarin ár hefur hún haldið förðunarnámskeið og hjálpað fólki að öðlast sjálfstraust og finna sína eigin leið í förðun.

„Það sem skiptir mestu máli er að þora – að hugsa út fyrir boxið, prófa sig áfram og hafa gaman. Förðun þarf ekki að vera fullkomin, fylgja öllum reglum eða vera flókin. Hún má einfaldlega vera þín,“ segir Halla.

Þrjátíu ára reynsla úr sviðslistum og förðun

Skjöldur Mio Eyfjord, skapandi stjórnandi og meðstofnandi Just Makeup, á að baki um 30 ára feril innan förðunar, sviðslista og skapandi greina. Margir þekkja hann einnig sem dragdrottninguna Mio Amore.

Skjöldur hefur unnið við fjölbreytt verkefni fyrir Eurovision, tónlistarmyndbönd, sjónvarpsþætti, kvikmyndir, leikhús og myndatökur. Hann hefur farðað fjölda brúða, skapað útlit fyrir svið og myndavélar og unnið með allt frá látlausri förðun yfir í stórt og litríkt sviðsglamúr.

Í dag starfar hann einnig sem gervahönnuður við leikhús í Stavanger í Noregi. Þar er förðun meðal annars notuð til að breyta aldri, skapa persónur og umbreyta leikurum áður en þeir stíga á svið.

„Dragið kenndi mér að vera óhræddur við förðun – að ýkja, prófa, mistakast, þurrka af og byrja aftur. Sem Mio Amore hef ég líklega sett meira makeup á mitt eigið andlit en nokkur manneskja ætti með góðu móti að viðurkenna,“ segir Skjöldur.

„En eftir öll þessi ár hef ég líka lært að góð förðun þarf ekki að vera flókin. Stundum þarf bara smá maskara, stundum allan pakkann og stundum ekki neitt. Það er ekkert rétt eða rangt. Það er bara makeup.“

Sköpun, gleði og frelsi

Just Makeup vill hvetja fólk til að prófa sig áfram og nota förðun sem tæki til sjálfstjáningar án óþarfa reglna eða fullkomnunaráráttu. Vörurnar eru í góðum gæðum, á aðgengilegu verði og hannaðar með það að markmiði að þær henti sem flestum, óháð stíl eða aldurshópum.

„Við viljum gera makeup aðgengilegt, skemmtilegt og fyrir alla. Þegar allt kemur til alls snýst förðun ekki um það sem þú átt að gera. Hún snýst um það sem þig langar að gera,“ segja Halla og Skjöldur.

„Have fun! It’s Just Makeup.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu