1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

9
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

10
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Til baka

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

MÓSA greindist í svínum í fyrsta sinn hér á landi

Svín
Íslenskt svínMÓSA greindist í nokkrum svínabúum hér á landi
Mynd: Joshua Lutz

Heildarsala sýklalyfja fyrir dýr á Íslandi jókst um 21,4 prósent á síðasta ári. Matvælastofnun segir aukninguna meðal annars tengjast áframhaldandi meðferð við kýlaveikibróður í landeldi á bleikju, en sala sýklalyfja til annarra dýrategunda jókst einnig.

Sýklalyfjameðferð vegna kýlaveikibróður í bleikjueldi hefur verið viðvarandi í nokkur ár og á áfram stóran þátt í heildarsölu sýklalyfja til dýra hér á landi. Matvælastofnun segir niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgst sé náið með þróun sýklalyfjanotkunar eftir dýrategundum og að stuðlað sé að ábyrgri og markvissri notkun lyfjanna.

MÓSA greindist í íslenskum svínum í fyrsta sinn

Árið 2025 greindist búfjártengdur meticillínónæmur Staphylococcus aureus, svokallaður MÓSA, í fyrsta sinn við skipulega skimun í íslenskum svínum.

Bakterían fannst í fjórum nátengdum svínabúum. Búfjártengdur MÓSA er vel þekktur innan svínaræktar í Evrópu en hafði ekki áður greinst í íslenskum svínum.

Matvælastofnun segir niðurstöðuna sýna mikilvægi reglubundinnar skimunar.

Ónæmi fyrir cíprófloxacíni algengt

Vöktun á sýklalyfjaónæmi í bakteríum úr dýrum og matvælum bendir að öðru leyti til þess að staðan hér á landi sé almennt góð í samanburði við mörg Evrópulönd.

Ákveðin þróun vekur þó áhyggjur. Ónæmi fyrir sýklalyfinu cíprófloxacíni er áfram algengt í Campylobacter coli í svínum. Af þeim stofnum sem voru ónæmisprófaðir árið 2025 reyndust 71,8 prósent ónæmir fyrir lyfinu.

Matvælastofnun segir niðurstöðurnar sýna mikilvægi þess að halda áfram reglubundinni vöktun á bæði sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi.

Minni notkun sýklalyfja hjá mönnum

Heildarsala sýklalyfja til manna nam 18,6 skilgreindum dagskömmtum á hverja 1.000 íbúa á dag, eða DID. Það er 4,6 prósenta samdráttur frá fyrra ári.

Sýklalyfjaónæmi hjá mönnum er enn almennt lítið á Íslandi í evrópskum samanburði. Þó hefur ákveðin tegund ónæmis aukist.

Árið 2025 greindust 22 einstaklingar með karbapenemasa-myndandi Enterobacterales, eða CPE. Það er mesti fjöldi sem greinst hefur á einu ári hér á landi.

Ársskýrsla Matvælastofnunar byggir á svokallaðri „Einnar heilsu“-nálgun þar sem sýklalyfjanotkun og sýklalyfjaónæmi hjá mönnum og dýrum er skoðað samhliða upplýsingum um sýklalyf og ónæmi í umhverfinu.

Matvælastofnun segir slíka heildstæða vöktun mikilvæga þar sem sýklalyfjaónæmi tengi saman heilbrigði manna og dýra og umhverfið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Loka auglýsingu