
BBC afhjúpar umfangsmikið net samfélagsmiðlarása þar sem karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum á skemmtistöðum um allan heim og hagnast á því fjárhagslega. Fórnarlömb lýsa miklum ótta eftir að hafa komist að því að myndskeið af þeim hafa verið skoðuð af milljónum manna.
Umfangsmikil rannsókn breska ríkisútvarpsins, BBC, sýnir að karlmenn stunda það kerfisbundið að elta og taka upp myndbönd af konum á næturlífi stórborga, oft úr lágum sjónarhornum og án þeirra vitundar eða samþykkis. Myndböndin, sem gjarnan eru merkt sem skaðlausar „gönguferðir“ eða „næturlífsefni“, eru í raun hönnuð til að sýna líkamshluta kvenna í fáum fötum eða stuttum pilsum og er þeim hlaðið upp á miðla borð við YouTube, TikTok, Facebook og Instagram.
Rannsakendur BBC bera kennsl á meira en 65 rásir á samfélagsmiðlum sem sérhæfa sig í þessu efni, en myndbönd þeirra hafa samanlagt fengið yfir þrjá milljarða áhorfa á síðustu þremur árum. Efnið er tekið upp í borgum á borð við London, Ósló, Miami og Bangkok, en ein vinsælasta staðsetningin er Manchester á Englandi.
Leyndar myndavélar og grímubúningar
Fréttamenn BBC fóru huldu höfði í miðbæ Manchester yfir Halloween-helgi til að fylgjast með gerendunum. Þar komust þeir á spor nokkurra umsvifamestu rekstraraðila þessara rása. Meðal þeirra voru tveir sænskir bræður, Florjan og Roland Reka. Florjan rekur eina stærstu rásina af þessu tagi með tæplega 200 milljónir áhorfa á YouTube og yfir 600 þúsund fylgjendur á Facebook.
Að sögn fréttamanna létu bræðurnir sem þeir væru að skoða símana sína í mjaðmahæð, en héldu í raun á földum myndavélum sem beint var upp undir pils kvenna sem gengu fram hjá. Seinna um helgina klæddust þeir svörtum grímum til að falla inn í hóp skemmtanaglaðra vegfarenda. Myndskeið sem birst hafa á rásum þeirra sýna konur úr lágum sjónarhornum þar sem nærföt eða rassar sjást, auk flegna barma.
Annar maður sem borið var kennsl á var staðbundinn leigubílstjóri, Dean Hill. Hann sást ganga fram hjá hópum kvenna með litla myndavél fest við brjóstkassann, áður en hann snéri við og elti þær til að taka myndir aftan frá. Hill neitar sök og fullyrðir í samtali við BBC að myndavél hans sé alltaf sýnileg, hann vísar því á bug að hann sé að einblína ákveðna hópa eða taki upp nektarefni og myndbönd undir pils.
„Þetta er ekki eðlilegt. Þetta hefði ekki átt að gerast“
BBC hafði uppi á tæplega 50 konum sem sjást í myndböndunum. Flestar þeirra höfðu ekki hugmynd um að verið væri að taka þær upp fyrr en fréttamenn höfðu samband. Ein þeirra, hin 21 árs gamla Grace (ekki hennar rétta nafn), uppgötvaði að myndband af henni fyrir utan skemmtistað hafði fengið yfir þrjár milljónir áhorfa.
„Ég skipulagði klæðnaðinn minn vandlega. Í augnhæð var allt hulið. En sjónarhornið á myndbandinu var mun lægra,“ segir hún. Systir hennar, Sophie (18 ára), sem var að fara út að skemmt sér í fyrsta sinn, segist vera skíthrædd og þorir ekki út lengur. „Þetta er ekki eðlilegt. Þetta hefði ekki átt að gerast,“ segir hún.
Fyrir neðan þessi myndbönd iða athugasemdakerfin af kvenfyrirlitningu, þar sem notendur gera lítið úr konunum eða kenna klæðnaði þeirra um að þær verði fyrir áreitni.
Lagalegt grásvæði
Þótt almennt sé löglegt að taka upp myndbönd á opinberum svæðum í Bretlandi og víðar, segja lögfræðingar sem sérhæfa sig í stafrænu ofbeldi að þessi háttsemi falli inn á lagalegt grásvæði. Sýnt þykir að slík hegðun geti brotið gegn lögum um kynferðislega friðhelgi (voyeurism), sérstaklega svokölluð „upskirt“-lög, sem og lögum um áreitni.
Innanríkisráðherra Bretlands, Shabana Mahmood, lýsti því yfir nýverið í tengslum við svipaða rannsókn að ríkisstjórnin myndi ekki umbera að ný tækni væri notuð til að auka ofbeldi og áreitni gegn konum og stúlkum.
Eftir að BBC kynnti niðurstöður sínar fyrir samfélagsmiðlum brást TikTok við með því að eyða fjórum rásum og YouTube lokaði tveimur. Margar rásir og myndbönd, sérstaklega á vegum Facebook og Instagram, eru þó enn fullkomlega aðgengileg á netinu.
