Gervigreind, öflugir tölvukubbar og nethernaður eru að umbylta heimi njósna. En sum leyndarmál eru enn fengin með gamaldags aðferðum: kynlífi, ástarsamböndum og hneykslismálum.
Nýlegt deilumál í tækniheiminum snýst um Jensen Huang, fráfarandi forstjóra tölvufyrirtækisins Nvidia, og ástarsamband hans við konu sem bandarísk stjórnvöld hafa sakað um að starfa fyrir kínversku leyniþjónustuna. Kínversk stjórnvöld hafa hafnað ásökununum.
Málið hefur vakið athygli á svokölluðum honey trap-aðferðum, þar sem ástarsambönd og kynferðisleg nánd eru notuð til að afla ríkisleyndarmála eða ná áhrifum yfir valdamiklu fólki.
Tælingar og fjárkúgun
Sagan er full af stjórnmálamönnum og áhrifafólki sem hafa flækst í net einstaklinga sem hafa það verkefni að vinna traust þeirra og komast þannig yfir viðkvæmar upplýsingar eða ná tangarhaldi á þeim.
Eitt þekktasta nafnið í sögu njósna er Mata Hari, hollenskur dansari sem var tekin af lífi árið 1917 eftir að hafa verið sökuð um að njósna fyrir Þjóðverja í fyrri heimsstyrjöldinni.
Kalda stríðið gaf einnig af sér fjölda sambærilegra mála. Árið 1964 var franski sendiherrann Maurice Dejean kallaður heim frá Moskvu eftir að hafa átt í ástarsambandi utan hjónabands, að sögn Cléments Renault, rannsakanda hjá frönsku stofnuninni um stefnumótandi rannsóknir.
Hneykslið varð tilefni einnar þekktustu háðsglósu Charles de Gaulle, þáverandi Frakklandsforseta, sem spurði sendiherrann: „Jæja, Dejean, eruð þér að sofa hjá einhverjum?“
Annað þekkt dæmi er mál Johns Vassall, starfsmanns breska sendiráðsins. Að sögn Renault kúgaði sovéska leyniþjónustan KGB hann með „nánum ljósmyndum sem sýndu samkynhneigð hans og teknar höfðu verið í Moskvu“.
Á níunda áratugnum var ísraelski uppljóstrarinn Mordechai Vanunu, sem hafði afhjúpað upplýsingar um leynilega kjarnorkuáætlun Ísraels, lokkaður í gildru af konu sem gekk undir nafninu Cindy. Hún „fékk hann til að koma með sér til Rómar, þar sem Mossad-ráðnir menn rændu honum og fluttu aftur til Ísraels“, sagði Renault.
Sum njósnamál af þessu tagi stóðu árum saman. Á sjöunda áratugnum hóf kínverski óperusöngvarinn Shi Pei Pu, sem starfaði leynilega fyrir kínversku leyniþjónustuna, ástarsamband við franska stjórnarerindrekann Bernard Boursicot. Sambandið stóð í tvo áratugi og á þeim tíma afhenti Boursicot Kínverjum viðkvæmar upplýsingar.
Ekki alltaf eins og í Hollywood
Þessar aðferðir geta tekið á sig ýmsar myndir. Sumir þeirra sem notaðir eru til að tæla skotmörk eru sérþjálfaðir, líkt og hinir þekktu „Romeo-njósnarar“ Austur-Þýskalands. Verkefni þeirra var að heilla einhleypar konur í Vestur-Þýskalandi og komast þannig yfir mikilvægar upplýsingar.
Í rannsóknarskýrslu bandarísku leyniþjónustunnar CIA sagði meðal annars:
„Skortur á hentugum karlmönnum var önnur afleiðing stríðsins. Því urðu einhleypar vesturþýskar konur sem þráðu félagsskap karla oft skotmörk austurþýskra njósnara.“
Slíkar aðgerðir eru þó ekki alltaf eins og úr Hollywood-kvikmynd. Leyniþjónustur hafa einnig nýtt sér vændisfólk, stjórnendur fyrirtækja og vel tengda einstaklinga sem þegar eru hluti af umhverfi þess sem njósnað er um.
Það er meðal annars það sem gerir ásakanirnar í máli Nvidia áhugaverðar. Alice Huang, konan sem átti í ástarsambandi við Jensen Huang, gegndi háttsettu starfi hjá Megaspeed, fyrirtæki í Singapúr sem sérhæfir sig í tölvuinnviðum fyrir gervigreind og átti viðskipti við Nvidia.
Renault sagði hana „ráðna til starfa fyrir kínverska öryggisráðuneytið sem útsendara og því í einstaklega góðri stöðu til að komast í samband við hann“.
Hann bætti við: „Það áhugaverða við þetta mál er að lykilmaður í því sem kallað er gervigreindarstríðið gæti hafa fallið í gildru sem byggist á tiltölulega hefðbundnum njósnaaðferðum.“
Fyrrverandi starfsmaður franskrar öryggisþjónustu rifjaði einnig upp hvernig kona frá Suður-Ameríku hafði haft samband við hann og sagst vera blaðamaður sem vildi taka viðtal við háttsettan embættismann í öryggisþjónustunni.
„Ég hitti hana tvisvar,“ sagði hann við AFP.
„Í bæði skiptin var hún óljós um blaðamennskuna og um hvað viðtalið ætti í raun að snúast. En hún sagði mér ítrekað að hjónaband hennar væri óhamingjusamt og sýndi mér myndir af sér í undirfötum.“
Þegar áhuginn er of mikill
Að sögn Renault er stutta svarið við því hverjir beiti þessum aðferðum: nánast allir.
„Mögulega geta allar leyniþjónustur gripið til aðgerða sem miða að því að koma einstaklingum í viðkvæma stöðu og beita sambærilegum aðferðum,“ sagði hann.
Hins vegar eru ekki öll ríki jafn vel í stakk búin til að standa að slíkum aðgerðum.
„Þessi verkefni krefjast þess að útsendarar sýni einstaklega mikla persónulega og líkamlega fórnfýsi,“ sagði Renault.
Hann telur að einræðisríki geti haft ákveðið forskot, þar sem stjórnvöld geti beitt þegnum sínum meiri þrýstingi eða knúið þá áfram með sterkri hugmyndafræði.
Gagnnjósnastofnanir vara embættismenn reglulega við því að njósnir hefjist sjaldnast með dramatískum leynifundi í dimmu húsasundi.
Franska innanlandsöryggisþjónustan hefur meðal annars birt myndband á YouTube undir yfirskriftinni: „Þú hefur lent í klóm erlendrar leyniþjónustu. Það er aldrei of seint að leita sér hjálpar.“
Bresk yfirvöld gefa einfaldari ráð: Farðu varlega ef einhver sýnir þér óvenjumikinn áhuga eða áhuginn virðist „of góður til að vera sannur“.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir