Nokkur útköll bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna meðal annars ölvunar, umferðarslyss og óboðins gests í húsnæði. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Lögreglu barst tilkynning frá dyravörðum skemmtistaðar vegna manns sem hafði ítrekað reynt að komast inn á staðinn þrátt fyrir að hafa áður verið vísað út. Lögreglumenn ræddu við manninn á vettvangi og gekk hann í kjölfarið á brott án frekari afskipta.
Í öðru tilviki var lögreglu tilkynnt um óboðinn mann í húsi. Sá sem tilkynnti málið var ekki á staðnum þegar lögreglu bar að garði. Lögreglumenn fengu aðgang að húsnæðinu og könnuðu aðstæður en engan var þar að finna.
Þá var tilkynnt um umferðarslys þar sem ein bifreið varð óökufær. Engin slys urðu á fólki samkvæmt upplýsingum lögreglu.
Einnig var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ölvaðs manns sem lá utandyra. Þegar lögreglumenn komu á vettvang greindi maðurinn frá því að hann hefði fallið og fengið höfuðhögg. Maðurinn kastaði jafnframt upp í viðurvist lögreglumanna.
Vegna ástands mannsins voru sjúkraflutningsmenn kallaðir til og fluttu þeir hann til frekari aðhlynningar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir