Það er eðlilegt að fá marbletti við högg og áverka. Ef þeir myndast hins vegar við minnstu snertingu getur verið ástæða til að kanna hvað liggur að baki, að því er fram kemur í grein UCLA Health frá 5. nóvember.
Marblettir myndast þegar litlar æðar undir húðinni rofna og blóð lekur út í vefina. Yfirleitt eru þeir meinlausir en geta orðið stærri eða verið lengur að hverfa hjá fólki sem er með viðkvæmar æðar eða truflun á blóðstorknun.
Hér eru fjórar algengar ástæður fyrir því að fólk fær auðveldlega marbletti:
- Öldrun: Með aldrinum þynnist húðin, hún missir teygjanleika og kollagen minnkar. Æðarnar verða viðkvæmari og fitulagið undir húðinni þynnist, þannig að líkaminn hefur minni vörn gegn höggum.
- Lyf og fæðubótarefni: Blóðþynningarlyf, aspirín, íbúprófen, sterar og ákveðin krabbameinslyf geta aukið hættuna á marblettum. Sum náttúruefni, meðal annars hvítlaukur, engifer, ginseng og ginkgo, geta einnig haft áhrif á blóðstorknun. Ekki hætta að taka lyf án samráðs við lækni.
- Skortur á næringarefnum: Skortur á B-, C- eða K-vítamíni og sinki getur haft áhrif á húð, æðar og blóðstorknun og aukið líkur á marblettum.
- Undirliggjandi sjúkdómar: Auðveld marblettamyndun getur tengst blóðsjúkdómum, svo sem fækkun blóðflagna eða dreyrasýki, sem og lifrarsjúkdómum. Smáir rauðir punktar eða útbreiddir blettir undir húð geta einnig bent til blæðinga í húð og þurfa að vera metnir af heilbrigðisstarfsfólki.
Hvenær ætti að leita læknis?
Leita ætti læknis ef marblettir birtast án augljósrar ástæðu, hverfa ekki, verða tíðari eða aukast eftir að ný lyf eru tekin. Einnig ef stórir og sársaukafullir marblettir hafa áhrif á hreyfigetu eða ef merki um sýkingu koma fram, svo sem hiti eða roði sem teygir sig út frá marblettinum.
Læknir getur metið ástandið, farið yfir lyfjanotkun og sjúkrasögu og eftir atvikum pantað blóðprufur til að kanna hvort undirliggjandi orsök sé til staðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir