Rabbíninn Benny Lau, sem sjálfur styður landnemabyggðir Ísraela á Vesturbakkanum, hefur lagt í óvenjulegt ferðalag til að kynna sér aðstæður Palestínumanna og ræða við bæði landtökufólk og íbúa palestínskra þorpa. Markmið hans er að vekja fólk í eigin samfélagi til umhugsunar um ofbeldi sem framið er í nafni þess.
Lau, sem er 65 ára og á ættir að rekja til þekkts rabbínaættarveldis í Ísrael, segist hafa verið blindur á raunveruleikann á Vesturbakkanum. Hann ákvað að ferðast eftir þjóðvegi 60, sem liggur frá norðri til suðurs um Vesturbakkann, eftir að fregnir af ofbeldi landtökufólks gegn Palestínumönnum urðu sífellt tíðari.
Í nokkra mánuði heimsótti hann 20 staði. Á hverjum stað dvaldi hann hálfan dag í landnemabyggð eða ólöglegum útstöðvum landtökufólks og hinn helminginn í palestínsku þorpi í nágrenninu. Hann skráði samtöl sín og upplifanir í bókina In the Path of the Patriarchs: A Personal Journey to a Zionist Reckoning. Ísraelska dagblaðið Haaretz fjallar um Lau í grein sem birtist í dag.
„Þetta er staður sem ég elska. Ég lærði hér, á djúpar rætur hér og þetta er órjúfanlegur hluti af sögu minni. En ég get ekki sætt mig við tilhugsunina um að sitja hér á meðan hendur okkar eru litaðar blóði,“ segir Lau.
Hann segist ekki vera vinstrisinnaður og styðji áfram það sem Ísraelar kalla landnemaverkefnið, en með þeim fyrirvara að saklausu palestínsku fólki sé ekki gert mein. Hann vonast til að fá fólk í trúarlegum síonisma til að horfast í augu við það sem gerist í næsta nágrenni þess.
Skotið á heimili og ráðist á íbúa
Blaðamaður Haaretz fylgdi Lau nýlega í heimsókn til Wadi al-Sheikh-hverfisins í palestínska bænum Beit Ummar, norðvestur af Hebron.
Íbúar sögðu að landtökufólk frá útstöðinni Gefen Ami, sem er aðeins um 200 metra frá hverfinu, hefði ráðist á svæðið kvöldið áður. Þrír bílar hefðu verið brenndir, gróðurhús eyðilagt og skotum hleypt af í átt að íbúðarhúsum. Ein kúlan hefði farið í gegnum svefnherbergisglugga og hættulega nærri lítilli stúlku sem lék sér á gólfinu.
Landnemamiðill hélt því fram að árásin hefði verið svar við grjótkasti Palestínumanna, en íbúarnir neituðu því að nokkur slík ögrun hefði átt sér stað.
Fyrrverandi bæjarstjóri Beit Ummar sagði Lau að íbúar hefðu sætt nær daglegum árásum frá útstöðinni síðustu tvo mánuði.
„Þú ert gyðingur og þeir eru gyðingar, en þú ert friðsamur,“ sagði hann við rabbínann. „Þú vilt hjálpa okkur, á meðan þeir kaupa byssur til að skjóta á heimili okkar.“
Annar íbúi sýndi blaðamanninum og Lau skotsár í glugga svefnherbergis síns og för eftir kúluna á veggnum. Þriðji maðurinn sagði landtökufólk hafa ráðist á sig með grjóti um miðjan október. Ein steinvala hefði lent á hné hans og hann þurft að gangast undir aðgerð.
Ísraelski herinn svaraði ekki fyrirspurn Haaretz um atvikin.
Rabbíninn kallaður svikari og „versti maður kynslóðarinnar“
Lau vildi einnig hitta hjónin Yair og Ayala Ben-Baruch, sem stofnuðu útstöðina Gefen Ami. Hann hafði samband við Yair og sagðist vilja heyra hans hlið á málinu áður en hann drægi ályktanir.
Yair viðurkenndi í samtali við Lau að útstöðin hefði ekki verið reist með löglegum hætti eða í samráði við herinn. Hann neitaði hins vegar að íbúar hennar hefðu staðið að árásinni í Beit Ummar.
Eftir heimsóknina skrifaði Lau um samtalið á Facebook. Yair svaraði með eigin færslu og sakaði rabbínann um að niðurlægja sig opinberlega. Í kjölfarið varð Lau fyrir miklum árásum á samfélagsmiðlum. Meðal þess sem honum var kallað voru „vók ormur“, „samverkamaður óvina okkar“ og „versti maður kynslóðarinnar“.
Lau segist hafa sætt gagnrýni fyrir að sverta orðspor ólöglega landnemasamfélagsins og skilja ekki ótta landnemanna við árásir Palestínumanna.
Hann segist hins vegar ekki ætla að hætta að ræða við landtökufólk. Hann gagnrýnir einnig vinstrisinnaða gyðinga sem neiti að eiga samtal við róttæka landnema.
„Ég trúi á að tala við báða aðila. Það kemur ekki til greina að ég hlusti á Palestínumenn en neiti að tala við gyðinga,“ segir hann.
Lau vonast til að geta haft áhrif á afstöðu fólks innan trúarlegs síonisma, meðal annars til Bezalel Smotrich, leiðtoga flokksins Trúarlegs síonisma. Honum þætti það árangur ef honum tækist að fá jafnvel hundrað manns til að endurskoða stuðning sinn við Smotrich.
Hann varar jafnframt við því að ef lög og regla verði ekki endurreist á Vesturbakkanum sé hætta á að ofbeldisfullir öfgamenn gyðinga snúist að lokum gegn ísraelska ríkinu sjálfu.
Aðspurður hvort hann teldi Yair Ben-Baruch hafa sagt satt þegar hann neitaði að íbúar útstöðvarinnar hefðu staðið að árásinni í Beit Ummar svaraði Lau:
„Ég held að hann sé ekki að segja sannleikann, en ég held að hann sé að segja sinn eigin sannleika. Það er allt annað.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir