Gauti B. Eggertsson, hagfræðingur, gagnrýnir Morgunblaðið harðlega fyrir myndbirtingu með frétt um ofbeldi gegn fjórum stúlkum á heimili þeirra í Reykjanesbæ en fréttin birtist á dögunum. Upphaflega fylgdi fréttinni mynd þar sem palestínski fáninn og regnbogafáni hinsegin fólks blöktu saman. Myndinni hefur nú verið skipt út en sést ennþá á Facebook ef leitar er að fréttinni.

Í Facebook-færslu segir Gauti myndnotkunina dæmi um siðleysi og mannfyrirlitningu gagnvart fólki sem flýr stríð og reynir að vernda börn sín fyrir sprengjuregni.
Hann bendir á að fréttin fjalli um harmleik erlendrar fjölskyldu sem sé hvorki frá Palestínu né samkynhneigð. Hann gagnrýnir því að myndin hafi verið notuð með fréttinni og spyr hvers vegna blaðið hafi talið það viðeigandi.
„En af einhverjum ástæðum telur blaðið eðlilegt að myndskreyta fréttina með regnbogafána og fána Palestínu?“ skrifar Gauti.
Hann lætur ekki þar við sitja og spyr hvort starfsfólk Morgunblaðsins eigi eitthvað bágt og hvaða fána ætti þá að nota sem myndefni þegar fjallað væri um starfsmenn blaðsins.
„Á fólkið á þessu blaði eitthvað bágt? Hvað afsakar eiginlega framferði af þessu tagi? Hvaða fána á maður að nota sem myndefni þegar maður fjallar um starfsmenn Morgunblaðsins? Einhverjar tillögur?“
Ekki í fyrsta skiptið
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem myndnotkun Morgunblaðsins hefur sætt gagnrýni í tengslum við myndbirtingu við frétt. Mannlíf greindi frá því 9. nóvember að félagið Ísland-Palestína hefði krafist opinberrar afsökunarbeiðni frá blaðinu vegna myndar af Saraa Almasri sem birtist með frétt um fólk sem þiggur fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.
Félagið sagði myndina, sem tekin var á mótmælum gegn þjóðarmorðinu á Gaza, ótengda fréttaefninu og gagnrýndi að hún gæti skapað neikvæð hugrenningatengsl um Palestínumenn og konur. Myndin hefði síðar verið fjarlægð úr netútgáfu fréttarinnar en væri enn í prentaðri útgáfu blaðsins.
Í báðum tilvikum hefur gagnrýnin snúist um að myndir tengdar Palestínu séu notaðar með fréttum um ótengd málefni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir