Ungverskur karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að flytja rúmlega hálft kíló af kókaíni til Íslands. Fíkniefnin voru falin innvortis þegar maðurinn kom til landsins með flugi frá Amsterdam.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær, 12. nóvember.
Maðurinn, Mihaly Horvath, er fæddur árið 1991 og er ungverskur ríkisborgari. Hann var ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa flutt samtals 537,84 grömm af kókaíni til landsins 26. ágúst síðastliðinn. Styrkleiki efnanna mældist á bilinu 81 til 82 prósent og voru þau ætluð til sölu hér á landi í ágóðaskyni.
Horvath játaði brot sitt skýlaust en við ákvörðun refsingar horfði dómurinn meðal annars til þess að maðurinn hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, svo kunnugt væri.
Þá þótti ekki sannað að hann hefði átt fíkniefnin eða tekið þátt í skipulagningu innflutningsins. Hann hafði hins vegar samþykkt að flytja efnin gegn greiðslu.
Dómurinn taldi níu mánaða fangelsisrefsingu hæfilega.
Auk fangelsisrefsingarinnar var Horvath gert að greiða tæplega 1,7 milljónir króna í sakarkostnað, þar af rúmlega 1,1 milljón króna í þóknun verjanda síns.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir