Bert M. Hanson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri heildsölunnar Íslenskrar Amerísku, lést 31. október síðastliðinn, tæplega 97 ára að aldri. Greint var frá andlátinu á mbl.is í morgun.
Bert fæddist í New York 11. nóvember 1929 og ólst þar upp. Hann flutti síðar til Los Angeles þar sem hann rak fasteignasölu. Árið 1961 kynntist hann Ragnheiði Jónasdóttur, tilvonandi eiginkonu sinni, og fluttust þau sama ár til Íslands. Þau eignuðust eina dóttur og tvö barnabörn. Ragnheiður lést árið 2019.
Árið 1964 stofnaði Bert Íslenska Ameríska, sem nú heitir ÍSAM, og stýrði fyrirtækinu til ársins 2014. Á ferlinum eignaðist hann einnig fyrirtækin Mylluna, Ora og Frón.
Með starfsemi sinni lagði Bert sitt af mörkum til að efla samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Fyrir það framlag hlaut hann sérstök Partnership-verðlaun við athöfn í bandaríska sendiráðinu árið 2011, en Fulbright-stofnunin stóð að verðlaununum.
Bert var einnig mikill áhugamaður um golf og hafði meðal annars umboð fyrir golfvörur frá Ping á Íslandi. Hann var lengi virkur félagi í Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi og fór alls sex sinnum holu í höggi, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir