Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Peningar

Danskur hag­fræð­ingur segir krón­una hafa verið mis­heppn­aða til­raun í heila öld

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Hjátrúin um föstudaginn þrettánda hefur raunveruleg áhrif

Margir fresta brúð­kaupum og ferðum vegna ótta við dag­setn­ing­una, þótt rann­sóknir sýni ekki að hún sé hættu­legri en aðrir dagar.

Margir forð­ast að gifta sig, ferð­ast eða taka stórar ákvarð­anir á föstu­deg­inum þrett­ánda vegna hjá­trúar um að dag­ur­inn boði ógæfu. En þótt dag­ur­inn hafi slæmt orð á sér eru litlar vís­bend­ingar um að hann sé í raun hættu­legri en aðrir dagar.

Í dag er föstu­dagur þrett­ándi í þriðja sinn á árinu 2026. Oftar getur það ekki gerst á einu ári, og 2026 er eina árið á þessum ára­tug sem föstu­dagur ber þrisvar upp á þann þrett­ánda. Síðast gerð­ist það árið 2015.

En hvaðan kemur þessi ótti við föstu­dag­inn þrett­ánda? Uppruni hjá­trú­ar­innar er ekki að fullu þekktur, en ýmsar trú­ar­legar og þjóð­sagna­kenndar skýr­ingar hafa verið nefndar.

Í nor­rænni goða­fræði er meðal ann­ars sagt frá því að Loki hafi laum­ast í veislu í Valhöll og verið þar þrett­ándi gest­ur­inn. Þar drap hann Fimafeng, vin­sælan þjón gest­gjafans. Í krist­inni hefð er Júdas sagður hafa verið þrett­ándi mað­ur­inn við síð­ustu kvöld­mál­tíð­ina. Hann sveik síðar Jesú, sem var kross­festur á föstu­degi.

Önnur skýr­ing tengir ótt­ann við must­er­iss­ridd­ar­ana. Hundruð þeirra voru hand­tekin föstu­dag­inn 13. októ­ber árið 1307, grunuð um villu­trú. Hjátrúin virð­ist þó ekki hafa orðið útbreidd fyrr en á 19. öld, meðal ann­ars í Frakk­landi.

Á síð­ari árum hefur dag­ur­inn einnig tengst hluta­bréfa­hrun­inu svo­kall­aða á föstu­deg­inum 13. októ­ber 1989 og banda­rísku hryll­ings­mynd­unum um morð­ingj­ann Jason Voorhees.

Hjátrúin hefur raunveruleg áhrif

Þótt engar afger­andi vís­bend­ingar séu um að föstu­dag­ur­inn þrett­ándi sé óheilla­dagur hefur hjá­trúin áhrif á dag­legt líf og atvinnu­líf.

Í könnun frá árinu 2015 sögð­ust 31 pró­sent aðspurðra myndu forð­ast að gifta sig á föstu­degi 13. Brúð­kaups­staðir, blóma­búðir og ljós­mynd­arar finna því fyrir áhrif­unum. Einn við­burða­stjóri í Bret­landi segir að engin brúð­kaup hafi verið bókuð á föstu­deg­inum þrett­ánda á þessu ári eða næstu þremur árum.

Nýleg rann­sókn á fast­eigna­við­skiptum í Bret­landi bendir jafn­framt til þess að íbúðir og hús sem gengið er frá kaupum á föstu­deg­inum þrett­ánda selj­ist að jafn­aði á lægra verði. Miðgildi sölu­verðs slíkra eigna á árinu 2026 var 275 þús­und pund, um 5,2 pró­sentum lægra en almennt mið­gildi árs­ins.

Sál­fræð­ingar segja að hjá­trú geti veitt fólki ákveðna örygg­is­til­finn­ingu. Þegar fólk upp­lifir að það hafi litla stjórn á aðstæðum geti hefðir og hjá­trú skapað til­finn­ingu fyrir fyr­ir­sjá­an­leika. Fólk muni síðan frekar eftir þeim til­vikum þegar hjá­trúin virð­ist hafa reynst rétt en gleymi þeim fjöl­mörgu skiptum þegar ekk­ert ger­ist.

Ótti við föstu­dag­inn þrett­ánda getur jafn­vel þró­ast yfir í sér­staka fælni sem kall­ast para­skevidekatri­aphobia. Að sögn sér­fræð­inga er slíkur ótti yfir­leitt lærður, enda fæð­ist fólk ekki hjá­trú­ar­fullt heldur til­einkar sér slíkar hug­myndir í upp­vext­inum.

Ódýrari flugferðir en hugsanlega meiri umferðarhætta

Það er þó ekki allt slæmt við þessa dag­setn­ingu. Þeir sem láta hjá­trú ekki hafa áhrif á ferða­á­ætl­anir sínar geta jafn­vel sparað sér pen­inga. Flug­far­gjöld ráð­ast að miklu leyti af eft­ir­spurn og færri vilja fljúga á þessum degi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá flug­leit­ar­vefnum Kayak voru flug­ferðir sem fóru frá Bret­landi föstu­dag­inn 13. júní í fyrra að með­al­tali 16 pró­sentum ódýr­ari en aðra daga í sama mán­uði.

En hvað með hætt­una á slysum? Rannsókn frá árinu 2013 á vegum Aviation Safety Network sýndi að með­al­tal banaslysa í flugi var lægra á föstu­degi 13. en aðra daga. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum voru banaslys að með­al­tali 0,067 á föstu­deg­inum þrett­ánda sam­an­borið við 0,091 aðra daga.

Önnur nið­ur­staða hefur þó vakið athygli. Trygg­inga­fé­lagið Aviva skoð­aði ára­tug af gögnum og komst að því að tjón vegna árekstra í umferð­inni jókst að með­al­tali um 13 pró­sent á þess­ari dag­setn­ingu miðað við aðra daga í sama mán­uði.

Vís­inda­legar rann­sóknir gefa þó ekki skýra nið­ur­stöðu um að dag­ur­inn auki slysa­hættu. Sál­fræð­ingar benda á að ótti við óhappa­dag geti sjálfur valdið kvíða og haft áhrif á ein­beit­ingu fólks, til dæmis við akstur.

Ekki óheilladagur alls staðar

Föstu­dag­ur­inn þrett­ándi er heldur ekki óheilla­dagur í öllum menn­ing­ar­heimum. Á Spáni og í Grikk­landi er það þriðju­dag­ur­inn þrett­ándi sem vekur óhug, en á Ítalíu er föstu­dag­ur­inn sautj­ándi tal­inn óheppi­legur.

Í Japan og Kína er talan fjórir talin boða ólán, enda hljómar hún svipað og orðið „dauði“ á tungu­mál­unum. Af þeim sökum eru til hótel þar sem fjórða hæðin er ekki núm­eruð.

Sumir líta hins vegar á töl­una 13 sem gæfu­merki. Söng­konan Taylor Swift hefur til dæmis oft talað um sér­stakt sam­band sitt við töl­una. Hún hefur meðal ann­ars bent á að hún hafi orðið 13 ára á föstu­deg­inum þrett­ánda og að ýmis mik­il­væg tíma­mót á ferl­inum hafi tengst töl­unni.

Þótt dag­ur­inn hafi því enn áhrif á ákvarð­anir fólks og við­skipti er fátt sem bendir til þess að hann sé í raun verri en aðrir dagar. Kannski er því óhætt að halda sínu striki í dag, hvort sem maður ætlar að gifta sig, ferð­ast eða ein­fald­lega fara út í búð.

Grein þessi byggir á grein The Guardian.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...
2
Slúður

Leyni­fé­lag Guðlaugs

Mis­mun­andi er hve sam­visku­samir alþing­is­menn eru við að skrá hags­muni sína eins og vera ber. Morg­un­blaðið er á eftir Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna hluta­fé­lags­ins Munn­bit­ans þar sem eig­in­maður hennar átti 10 pró­senta hlut. Félagið var í hags­muna­skrá Kristrúnar þar til það fór í þrot. Mogginn hefur aftur á móti ekk­ert gert með þá stað­reynd að Ágústa Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Morg­un­blaðið aftur gagn­rýnt fyrir mynda­notkun við frétt

Gauti B. Eggertsson gagnrýnir að fánar Palestínu og hinsegin fólks hafi fylgt frétt um ofbeldi gegn stúlkum í Reykjanesbæ.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Innlent

Trufl­anir hjá Microsoft hafa áhrif á starf­semi MAST

Heimur

Lindberg kallar eftir því að stríð­inu í Súdan verði hætt

Innlent

Móðir á Íslandi í laga­legri sjálf­heldu vegna föður sem eng­inn finnur

Fólk

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti

Marblettir sem birtast án augljósrar ástæðu eða verða tíðari geta bent til þess að þörf sé á læknismati.
Viðtal
Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Fólk

Glúmur er rif­beins­brot­inn

Fólk

Gusu­m­eist­ari og fag­ur­keri taka höndum saman

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti