Dyna Mitte, móðir leikarans RJ Mitte sem lék Walter White yngri í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad, hefur birt hjartnæma færslu á Instagram þar sem hún minnist sonar síns, mánuði eftir að hann lést.
„Elsku fallegi drengurinn minn. Nú er mánuður liðinn frá því þú yfirgafst okkur. Ég sakna þín svo mikið að það er sárt,“ skrifar Dyna.
Hún segir sorgina taka á með ólíkum hætti frá degi til dags. Stundum líði henni eins og andlátið hafi átt sér stað í dag, en á öðrum stundum virðist sem heil eilífð sé liðin.
„Ég er að reyna að fóta mig í þessu nýja lífi, en það er sárt og erfitt,“ skrifar hún.
Dyna segist myndu gefa hvað sem er fyrir að fá að halda aftur á móti syni sínum, sjá fallega brosið hans og hlæja með honum að skrýtnu samtölunum sem þau áttu saman.
„Ég elska þig að eilífu og lengur. Haltu áfram að vaka yfir okkur. Með allri minni ást, mamma,“ segir hún að lokum.
RJ Mitte tók sitt eigið líf á heimili sínu í Texas 12. október síðastliðinn, 34 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Walter White yngri í Breaking Bad og var ötull talsmaður réttinda fatlaðs fólks.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir