Eftirlitsmyndir frá veitingastað í Gautaborg sýna þegar fyrrverandi hástökkvarinn Stefan Holm réðst á hlaðvarpsstjórnandann Emil Persson í september síðastliðnum. Persson hlaut áverka á hálsi og blóðugar rispur á baki í átökunum.
Holm, sem varð Ólympíumeistari í hástökki árið 2004, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás vegna málsins.
Atvikið átti sér stað á bar í tengslum við bókamessuna í Gautaborg. Á upptökum úr eftirlitsmyndavélum má sjá Holm grípa í Persson og þrýsta honum upp að súlu á veitingastaðnum.
Samkvæmt ákærunni tók Holm Persson hálstaki, ýtti honum til, greip í skyrtu hans og þrýsti honum upp að afgreiðsluborði, vegg og sófa.
Í lögregluyfirheyrslu lýsti Holm því hvernig hann hefði gripið í kraga Persson og mögulega hálsmen hans áður en hann ýtti honum frá sér. Hann sagði skyrtuna líklega hafa rifnað í átökunum.
Gríman féll vegna gamals brandara
Aðdragandi árásarinnar virðist hafa verið gamalt grín Persson í sjónvarpsþætti. Þar hafði hann spurt hástökkvarann Patrik Sjöberg hvort hann hefði hugleitt að ráða Holm og son hans af dögum.

Persson lýsti því í yfirheyrslu að Holm hefði verið mjög reiður þegar hann réðist á hann.
„Hann tók mig kyrkingartaki, fyrst með báðum höndum og líklega síðan með annarri. Hann reif líka í mig. Ég var með rispur og það blæddi úr bakinu. Þetta var mjög, mjög árásargjarnt og ógnandi,“ sagði Persson.
Ljósmyndir úr rannsóknargögnum sýna áverka á hálsi hans og rispur á bakinu.
Persson sagði jafnframt að hann hefði brostið í grát um tíu mínútum eftir árásina.
Vitni lýsa mikilli árásargirni
Fjöldi fólks varð vitni að atvikinu. Eitt vitni sagði við lögreglu að reiði Holms hefði blossað upp á örskotsstundu.
„Viðbrögð Stefans fóru úr núlli í hundrað. Hann varð alveg brjálaður og þetta var mjög óþægilegt. Emil virtist dauðhræddur og eiginkona Stefans reyndi að ganga á milli þeirra,“ sagði vitnið.
Holm hefur viðurkennt að hafa beitt Persson valdi en telur að brotið eigi fremur að flokkast sem minniháttar líkamsárás eða ósæmileg háttsemi.
„Ég játa minniháttar líkamsárás eða ósæmilega háttsemi. Það er ákæruvaldsins að ákveða hvernig brotið verður flokkað,“ sagði hann í yfirheyrslu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir