
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur um nokkurt skeið unnið að rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi sem talin er tengjast fíkniefnaframleiðslu en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni.
Um kl. 10 í gærmorgun, 18. júní, var farið í samræmdar lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum á landinu þar sem framkvæmdar voru húsleitir að undangengnum úrskurðum frá Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Með aðgerðunum í gær var unnt að staðfesta þessar grunsemdir og er rannsókn á frumstigi. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum í dag. Í aðgerðunum var lögreglan á Norðurlandi eystra í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Málið er enn á viðkvæmu stigi og segir lögreglan að ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Komment