
Aktivistinn og fyrrum formaður Trans Ísland Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir er ósátt við blaðamanninn Steinar Einar Stefánsson en hann kallaði Alexöndru Briem borgarfulltrúa kynskipting.

Ugla Stefanía segir „að það sé nú alveg frekar augljóst að fréttamaður sem á vel að vita betur noti ekki orðið kynskiptingur til neins nema að ögra, vekja viðbrögð fjölmiðla, og til þess að særa“ og hún trúir því ekki að þetta sé gert með góðum hug og er „allavega ekki gert í þeim tilgangi að skapa neina alvöru málefnalega umræðu.“
Hún segist þó varla geta annað en „hlegið, enda erfitt að taka manneskju alvarlega sem notar þetta orð, svona rétt eins og það er mjög erfitt að taka manneskju alvarlega sem notað orðið kynvillingur eins og ekkert sé eðlilegra. Mjög mikill „Virkur í athugasemdum“ bragur yfir þessu.“

Að mati Uglu Stefaníu er „Írónían í þessu öllu auðvitað að fólk sem teflir hinsegin fólki fram í umræðunni um þjóðarmorð á Gasa er almennt ekkert rosa annt um réttindi hinsegin fólks utan þess.“
Hún segir það nota þau sem eitthvað „bitbein í þessari umræðu er hvorki gert í einlægni né vegna raunverulegra áhyggja um öryggi hinsegin fólks“ og að þetta er bara „lélegt yfirklór til að reyna að halda áfram að réttlæta yfirstandandi þjóðarmorð gegn fólki frá Palestínu.“

Ugla Stefanía segir að endingu að ef þessu „fólki“ sé virkilega svona „annt um hinsegin fólk á þessu svæði þá ættu þau væntanlega að mótmæla því að það sé verið að sprengja þau og fjölskyldur þeirra í tætlur á hverjum einasta degi.“
Komment