1
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

2
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

3
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

4
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

5
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

6
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

7
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

8
Innlent

Landasali á ferð

9
Menning

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra

Til baka

„Við getum lært af öðrum”

Nótt Thorberg segir að Ísland standi á tímamótum í umhverfismálum og að það sé kominn tími til að grípa til aðgerða

Nótt Thorberg
Nótt ThorbergUmhugað um loftslagsaðgerðir

Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum og grænum lausnum, segir í greinað Ísland standi á tímamótum í umhverfismálum og að það sé kominn tími til að grípa til aðgerða.

„Á tímum óvissu í alþjóðamálum, aukins þrýstings á orkumarkaði og hnattrænna áskorana í loftslagsmálum höfum við ekki efni á að bíða“ segir Nótt og bætir því við að „góðu fréttirnar eru þær að lausnirnar eru til staðar og nú þurfum við einfaldlega að láta hendur standa fram úr ermum; virkja styrk samfélagsins, sameina krafta atvinnulífs og stjórnvalda og efla þannig samvinnu sem skilar raunverulegum aðgerðum.“

Nótt er klár á því að hér á Íslandi höfum „við öll tækifæri til að gera þetta“ og nefnir „forskot í nýtingu auðlinda, orkuskipti, græna iðnbyltingu, íslenskt hugvit á sviði loftslagslausna og markvisst samstarf atvinnulífs og stjórnvald.“

Hún segir ennfremur að þetta séu ekki bara „hugmyndir á blaði heldur raunverulegir möguleikar sem Ísland getur nýtt sér. Allt eru þetta atriði sem skilað hafa vel launuðum störfum, stuðlað að samkeppnishæfi og auknum lífsgæðum á Íslandi. Næsta skref er að tengja saman loftslags- og atvinnustefnu stjórnvalda við verkfærakistu atvinnulífsins og hrinda áætlunum í framkvæmd.“

Og hún vill leita að innblæstri erlendis og „Danir hafa til að mynda, með NEKST-samstarfinu, sýnt hvernig markviss samvinna stjórnvalda og atvinnulífs skilar raunverulegum niðurstöðum fyrir umhverfi, samfélag og efnahag.“

Nótt er viss um að „við getum lært af öðrum en jafnframt byggt á okkar eigin styrkleikum og þeim árangri sem náðst hefur hérlendis. Þar má nefna verkefnið Byggjum á grænni framtíð, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila í byggingariðnaðinum um vistvænni mannvirkjagerð og aðgerðir í loftslagmálum. Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 hefur þegar skilað 40 árangursríkum aðgerðum af þeim 74 sem upphaflega voru settar fram, og nýlega voru kynntar 16 nýjar aðgerðir. Verkefnið er fyrirmyndarverkefni þegar kemur að framkvæmd stefnu í loftslagsmálum og gott dæmi um það hvernig samstarf stjórnvalda og atvinnulífs skilar áþreifanlegum árangri á þessu sviði.“

Á ársfundi Grænvangs, Samstarf til framtíðar – öflugt Ísland, er ætlunin „að ræða framtíðina í þessum málaflokki; hvernig kraftmikið samstarf stjórnvalda og atvinnulífs getur lagt grunn að samkeppnishæfni til framtíðar, öruggu orkukerfi og markvissum loftslagslausnum. Á fundinum munum við flétta skapandi hugsun við hagnýtar lausnir og vera hvert öðru innblástur til að takast í sameiningu á við áskoranir morgundagsins.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

TikTok-stjarna líflátin opinberlega
Heimur

TikTok-stjarna líflátin opinberlega

Var rænt í miðju streymi og tekin færð inn á torg.
Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi
Myndir
Fólk

LEGO-hús til sölu í Seljahverfi

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið
Menning

Dóra hjólar í Ríkisútvarpið

Þrír látnir í brimi við Tenerife
Heimur

Þrír látnir í brimi við Tenerife

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra
Menning

Ljúffengur grænmetisréttur í ofni fyrir fjóra

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Selja einstakt einbýli á Álftanesi
Myndir
Fólk

Selja einstakt einbýli á Álftanesi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma
Menning

Frábær kjúklingaréttur á stuttum tíma

Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni
Innlent

Dæmdur fyrir lögbrot í Kringlunni

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn
Innlent

Ofbeldismaður rifbeinsbraut bróður sinn

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Kona tekin með kók á Keflavíkurflugvelli

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi
Innlent

Lögreglan tók „vímaðan“ ökumann sem á að vísa úr landi

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn
Innlent

Hafnfirðingur vill skilja við eiginmann sinn

Loka auglýsingu