Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, er mjög ósáttur við að vera ekki borgarstjóri lengur. Það er greinilegt á ummælum sem hann hefur látið falla eftir að misheppnuð áætlun hans um nýjan meirihluta hrundi eins og spilaborg. Þá hafa orð hans augljóslega gefið til kynna að fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi sé að gefa Sjálfstæðisflokknum undir fótinn en ljóst er að Einar á ekki neina samleið með stefnu Framsóknarflokksins.
Líklegt er að Hildi Björnsdóttur, oddvita borgarstjórnarflokksins, verði skipt út fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar enda hefur hún ekki gert góðan leik síðan hún tók við stöðunni. Sumir innan flokksins telja nær öruggt að Guðlaugur Þór Þórðarson verði næsti oddviti flokksins í borginni vilji hann það.
Ef hann vill það ekki er skýrt að Sjálfstæðismenn mundu ekki þurfa að hafa mikið fyrir því að lokka Einar yfir í oddvitasætið enda gamall flokksmaður þar á ferð. Sennilega er það síðasta tækifæri Einars til að komast aftur í borgarstjórastólinn góða …