1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

3
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

6
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

7
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

8
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

9
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

10
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Til baka

Voðaverkið í Liverpool - Tímalína

Alls 27 slasaðir eftir að bíl var ekið á mannfjölda sem fagnaði Englandsmeistaratitli Liverpool FC.

Liverpool fagnar
Sigurvagn Liverpool FCLiverpool FC fangar tuttugasta Englandsmeistaratitli sínum.
Mynd: Dilantha Dissanayakeanadolu via AFP

Liverpool-borg varð fyrir áfalli í gær þegar bifreið var ekið inn í mannfjölda sem saman var kominn í miðborginni. Atvikið átti sér stað um klukkan 18:00 þegar fjöldi fólks var saman kominn til að fagna Englandsmeistaratitli Liverpool FC, en talið er að hundruð þúsunda hafi verið viðstödd sigurgöngu liðsins.

Alls voru 27 manns fluttir á sjúkrahús, þar af fjögur börn. Lögreglan handtók karlmann, 53 ára gamlan hvítan Breta frá Merseyside, sem grunaður er um að hafa verið ökumaður bifreiðarinnar. Lögregla útilokar hryðjuverk.

Borgarstjóri: Fjórir enn alvarlega slasaðir

Steve Rotherham, borgarstjóri Liverpool, greindi frá því að fjórir væru enn „mjög, mjög veikir“ á sjúkrahúsi þegar nýr dagur rann upp og borgin er enn að melta atburðinn. Fjölmargar spurningar hafa vaknað í kjölfarið og hér fyrir neðan er yfirlit yfir helstu atburði gærdagsins:

Kl. 17:50 – Gleðin í hámarki

Tíu mínútum áður en ódæðið átti sér stað var gleðin í algleymingi á Strand í Liverpool. Liverpool FC hafði þá lokið sigurgöngu sinni í gegnum Allerton, sem hófst kl. 14:00, og tónlistarmaðurinn Calvin Harris lék lagið One Kiss þegar ódæðið gerðist.

Kl. 18:00 – Bifreið ekur á mannfjöldann

Bifreið ók inn í mannfjöldann á Water Street. Vitni lýstu því hvernig bílstjórinn „flautaði“ á meðan hann þröngvaði bílnum í gegnum þéttan hóp stuðningsmanna Liverpool. Fólk öskraði af skelfingu og í myndefni mátti sjá örvæntingu og reiði þegar bifreiðin stoppaði ekki. Lögregla og sjúkralið voru fljót á vettvang og fólk reyndi að aðstoða hina slösuðu.

Sjá mátti fólk lemja á bifreiðinni á meðan ökumaðurinn reyndi að bakka og aka áfram. Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið komu strax á vettvang og einnig var kallað eftir þyrlu frá bráðaliði Norður-Englands.

Kl. 19:00 – Lögregla staðfestir handtöku

Merseyside-lögreglan sendi frá sér tilkynningu kl. 19:00 þar sem staðfest var að karlmaður frá svæðinu hefði verið handtekinn. Í yfirlýsingunni sagði:
„Við fengum tilkynningu rétt eftir kl. 18:00 um að bifreið hefði keyrt á gangandi vegfarendur á Water Street. Bifreiðin stöðvaðist á vettvangi og ökumaðurinn var handtekinn. Neyðarþjónustur eru nú á vettvangi.“

Kl. 19:33 – Forsætisráðherra bregst við

Forsætisráðherrann Keir Starmer sagði atvikið „skelfilegt“ og þakkaði viðbragðsaðilum fyrir skjót viðbrögð. Hann sagðist vera í stöðugu sambandi við yfirvöld um gang mála.

Kl. 20:00 – Liverpool FC sendir frá sér yfirlýsingu

Knattspyrnufélagið Liverpool FC sagði í yfirlýsingu að hugsanir þeirra væru hjá þeim sem urðu fyrir áhrifum atviksins. „Við munum halda áfram að styðja neyðar- og sveitarfélagsyfirvöld á meðan málið er rannsakað.“

Kl. 22:55 – Fjöldi slasaðra staðfestur

Aðstoðaryfirlögregluþjónninn Jenny Sims staðfesti að 27 manns hefðu slasast í árekstrinum, þar af fjögur börn. Einn fullorðinn og eitt barn voru alvarlega slösuð. Um 20 aðrir voru með minniháttar meiðsl. Sims bætti við að ekki væri talið að atvikið tengdist hryðjuverkum.

Mirror fjallaði um málið.

Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun The Sun um málið en viðkvæmir eru varaðir við myndefninu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félagsins ráðast

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot
Innlent

Sverrir Einar aftur dæmdur fyrir skattalagabrot

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar
Innlent

Móðir ákærð fyrir að slá, klípa og bíta dætur sínar

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur
Heimur

Maðurinn sem stökk til tígrisdýrsins verður ekki nafngreindur

„Hann virtist vera í leiðslu“
Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni
Heimur

Ofurmennið sýndi getnaðarlim sinn fyrir slysni

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu
Heimur

Rússar hafna 60 daga vopnahléi vegna forsetakosninga í Úkraínu

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu
Heimur

Tveir nánir bandamenn Ben-Gvir rannsakaðir vegna árásar á lögreglu

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar
Heimur

Húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar

Loka auglýsingu