
Maðurinn sem lést eftir að hafa stokkið inn í girðingu tígrisdýrs í dýragarði í Jórvíkurskíri á Englandi verður ekki nafngreindur að ósk fjölskyldu hans. Þetta segir lögreglan í Suður Jórvíkurskíri.
Vitni hafa sagt breska dagblaðinu The Telegraph að kona hafi reynt í örvæntingu að halda aftur af manninum þegar hann ætlaði að stökkva niður á svæði tígrisdýrsins.
Konan var þar ásamt tveimur börnum sínum. Maðurinn yfirbugaði hana og stökk af brú og niður á svæði tígrisdýrsins, samkvæmt frásögn vitnisins Hunt í samtali við blaðið.
„Hann virtist vera í leiðslu“
Annar sjónarvottur, Hogan, lýsti því hvernig maðurinn virtist nálgast tígrisdýrið á undarlegan hátt áður en það réðst á hann.
„Maðurinn byrjaði að biðja til tígrisdýrsins og hneigja sig fyrir því. Tígrisdýrið virtist dálítið ringlað,“ sagði hún.
„Þar til tígrisdýrið réðst á hann var eins og hann væri í leiðslu og alls ekki í tengslum við raunveruleikann.“
Hún sagði manninn hafa staðið með faðminn útbreiddan, eins og hann biði eftir því að tígrisdýrið réðist á sig.
„Þetta var hræðilegt. Við stóðum þarna frosin úr skelfingu. Það síðasta sem við sáum var kjálki tígrisdýrsins við háls hans,“ sagði Hogan.
