
Tveir háttsettir meðlimir öfgahægriflokksins Otzma Yehudit, flokks Itamars Ben-Gvirs, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, sæta rannsókn vegna gruns um að hafa ráðist á lögreglumenn og slasað tvo þeirra. Þeir eru jafnframt sakaðir um að hafa hjálpað gyðingi, sem grunaður er um ofbeldi gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum, að komast undan lögreglu.
Þetta kemur fram í frétt í ísraelska dagblaðinu Haaretz.
Rannsóknargögn sýna að Itiel Neiman, framkvæmdastjóri flokksins, og Yitzhak Kroizer, þingmaður hans, hafi verið í hópi fólks sem hindraði lögreglubifreið í landtökubyggðinni Mitzpe Yericho. Þar lenti fólkið í átökum við lögreglumenn og gerði hinum grunaða kleift að flýja. Hann hefur ekki fundist.
Hópur hindraði lögreglubifreið
Atvikið átti sér stað þegar rannsóknarlögreglumenn frá lögregluumdæmi Vesturbakkans hófu eftirför að bifreið með nokkrum grímuklæddum gyðingum sem grunaðir eru um að hafa beitt ofbeldi í palestínsku þorpi í nágrenninu.
Lögreglubifreið stöðvaði bílinn nærri samkunduhúsi í landtökubyggðinni. Tveir þeirra sem voru í bílnum flúðu en lögreglumönnum tókst að handtaka þann þriðja.
Samkvæmt rannsókninni fór Neiman, sem er einn nánasti bandamaður Ben-Gvirs, fyrir hópnum sem hindraði lögreglubifreiðina. Heimildarmenn segja að Neiman hafi sagt lögreglumönnunum að þeir kæmust ekki þaðan nema þeir slepptu hinum grunaða.
Hjólbarðar bæði lögreglubifreiðarinnar og bílsins sem hinir grunuðu höfðu verið á voru gataðir með eggvopni.
Ben-Gvir kom á vettvang eftir átökin
Ben-Gvir kom ekki á vettvang fyrr en eftir að átökin höfðu átt sér stað. Samkvæmt heimildarmönnum innan lögreglunnar tók hann þá afstöðu með fólkinu sem hindraði lögreglubifreiðina og sakaði einn lögreglumann um að hafa beitt óhóflegu valdi.
Heimildarmenn innan lögreglunnar hafa lýst áhyggjum við Haaretz af því að málið verði ekki rannsakað með fullnægjandi hætti vegna tengsla hinna grunuðu við ráðherrann.
Neiman, Kroizer og Ben-Gvir hafa allir hafnað ásökununum og sagt þær vera ærumeiðandi.
Kroizer lagði fram kvörtun á sunnudag til deildar dómsmálaráðuneytisins sem rannsakar meint misferli lögreglu. Þar hélt hann því fram að lögreglumenn hefðu beitt óhóflegu valdi í átökunum og ráðist á hann jafnvel eftir að hann hafði kynnt sig sem þingmann á ísraelska þinginu, Knesset.
„Ásakanirnar sem bornar eru á mig eru tilhæfulausur samsetningur af lygum,“ sagði Kroizer.
