
Dmitry Peskov, talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, segir að Rússland muni ekki samþykkja 60 daga vopnahlé til að gera úkraínskum stjórnvöldum kleift að halda forsetakosningar.
Hann útilokaði þó ekki að Rússar gætu hætt loftárásum á sjálfan kjördaginn.
„Ef þeir í Kænugarði vilja í alvöru halda kosningar þar, þá verður forseti Rússlands, sem jafnframt er æðsti yfirmaður rússneska hersins, reiðubúinn að gefa fyrirmæli um að ráðast ekki á Úkraínu á kjördag. Nákvæmlega á kjördag,“ sagði Peskov.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði 10. október að kominn væri tími til að Úkraína „fengi nýjan forseta“ sem gæti „gert samning“.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, brást við ummælum Trumps með því að leggja til að hann „segði Pútín“ að Úkraína þyrfti 60 daga vopnahlé til að halda kosningar.
„Algert vopnahlé í 60 daga og við munum skipuleggja kosningar,“ sagði Zelensky.
