
Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur höfðað sakamál gegn móður sem ákærð er fyrir brot í nánu sambandi gegn tveimur dætrum sínum. Meint brot áttu sér stað frá hausti 2019 til 2. mars 2021, þegar stúlkurnar voru á aldrinum fjögurra til átta ára.
DV greindi fyrst frá ákærunni.
Samkvæmt ákæru er konunni gefið að sök að hafa endurtekið beitt dætur sínar andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum með alvarlegum og sérstaklega sársaukafullum og meiðandi hætti. Með háttseminni hafi hún ógnað heilsu þeirra og velferð.
Konan er meðal annars sökuð um að hafa slegið og klipið stúlkurnar víðs vegar um líkamann og togað í eyru þeirra. Þá er henni gefið að sök að hafa bitið aðra dótturina í handarbak og rifið í hár hinnar þannig að höfuð hennar skall á skáp.
Krafist er refsingar og greiðslu sakarkostnaðar. Þá er krafist þriggja milljóna króna í miskabætur fyrir hvora dóttur.