6 Heimur „Ég var ekki fullklæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefnherbergisgluggann minn!“
InnlentBorgin hættir við fækkun áramótabrenna: „Hér er um tilfinninga- og hitamál að ræða“1. nóvember 2024 Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hætta við að fækka brennum í borginni um næstu áramót. Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata tilkynnti nú fyrir stundu á Facebook að borgin hefði ákveðið að hlusta á íbúa og íbúaráð um að hætta við að fækka áramótabrennum í ár. Dóra skrifaði: „Ég hef alltaf einsett mér að vera auðmjúk og næm á sjónarmið íbúa út...
InnlentReykjavíkurborg mun auglýsa eftir húsnæði fyrir Konukot á næstu dögum9. september 2024 Reykjavíkurborg hyggst á næstu dögum auglýsa eftir húsnæði fyrir starfsemi Konukots, neyðarskýlis fyrir heimilislausar konur. Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar segir í samtali við RÚV að borgin þurfi að sjá hverju það skilar áður en næstu skref verði ákveðin. Í næstum því tvo áratugi hefur Konukot verið rekið í gömlu steinhúsi en gagnrýn hefur verið hversu lítið það er, með...
InnlentFramsókn biði afhroð í borginni ef kosið yrði í dag – Sanna talin standa sig best28. ágúst 2024 Algjört afhroð biði Framsóknarflokkins í Reykjavík kosið yrði í sveitarstjórnarkosninum í dag, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Samfylkingin fengi flest atkvæði samkvæmt sömu könnun. RÚV segir frá niðurstöðu nýrrar könnunar Maskínu á fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg en Framsókn, sem var sigurvegari síðustu borgarstjórnarkosninga, mælist nú með 14 prósent minna fylgi en í síðustu kosningum eða einungis fjögur prósent. Könnun Maskínu fór...
InnlentBrynjar gerir stólpagrín að Dóru Björt: „Það er listgrein að geta blaðrað endalaust“23. júlí 2024 Brynjar Níelsson hæðist að Dóru Björt Guðjónsdóttur, formanni umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í nýrri færslu á Facebook. Í færslunni gerir fyrrverandi þingmaðurinn Brynjar Níelsson stólpagrín að Píratanum Dóru Björt Guðjónsdóttur en hann segir hana aðeins kunna þrjú orð. „Oft getur verið snúið fyrir borgarstjórann og meirihlutann í borginni að svara fyrir verk sín og verkleysið. Það vefst þó ekki fyrir...
InnlentDagur svarar Hildi fullum fetum: „Ég vinn frítt sem formaður borgarráðs á biðlaunatímanum“21. júní 2024 Dagur B. Eggertsson skýtur föstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn í borginni í nýrri Facebook-færslu. Morgunblaðið gerði frétt í morgun þar sem fram kemur að borgastjóraskiptin í upphafi árs, hafi kostað borgarsjóð 25 milljónir króna. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, sagðist ætla að krefjast frekari útskýringa á málinu: „Ef í ljós kemur að Dagur hefur fengið full borgarstjóralaun greidd, ofan á...
InnlentSanna vill hækka hlutfall félagsíbúða í Reykjavík: „142 barnafjölskyldur eru á þessum biðlista“19. júní 2024 „656 manns bíða nú eftir félagslegu leiguhúsnæði hjá borginni. Þarna er um að ræða lágtekjufólk sem býr við þunga framfærslubyrði og mjög erfiðar félagslegar aðstæður og þarf á húsnæði á að halda.“ Þannig hefst Facebook-færsla Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins. Í færslunni sem hún birti í gær, fer hún yfir stöðuna á félagslega leiguhúsnæðismarkaðnum í Reykjavíkurborg. „Talan 656 manns nær...
InnlentMaría Sigrún birtir tölvupósta Dags: „Leitt að honum gremjist það“9. maí 2024 „Fyrrverandi borgarstjóri Dagur B. Eggertsson segir í stöðufærslu á fb-síðu sinni að fréttaskýring mín sem birt var í Kastljósi á mánudagskvöld hafi verið einhliða, ýkjukennd og í mikilvægum atriðum röng. Hér eru svör mín við því.“ Þannig hefst löng færsla Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur, fréttakonu á RÚV, þar sem hún svarar Degi B. Eggertssyni, sem gagnrýndi umfjöllun Maríu í Kastljósþætti á...
InnlentRuðningshaugar valda víða óþægindum í Reykjavík: „Orðið svolítið mikið núna og þetta tekur tíma“5. febrúar 2024 Víða um Reykjavíkurborg er erfitt fyrir gangandi vegarendur að komast leiða sinna vegna ruðningshóla sem myndast hafa að undanförnu. Í Facebook-hópi íbúa Breiðholts birtist nýverið ljósmynd sem sýnir afleit vinnubrögð starfsmanns Reykjavíkurborgar en þar sést hvar snjóhaug hefur verið rutt inn í undirgöng en myndina má sjá hér fyrir neðan: Þetta getur ekki talist til góðra vinnubragða?Mynd: Facebook Víða má...
InnlentBörn í Grafarholti í hættu vegna gangstéttar sem aldrei er rudd: „Eigðu yndislegan dag“1. febrúar 2024 Íbúi í Grafarholti sendi ábendingu á Reykjavíkurborg vegna gangstéttar sem aldrei er rudd og skapar þannig hættu fyrir börn á leið í skólann. Íbúinn var ekki ánægður með svar borgarinnar. Ógerningur er að ganga á brautinni.Mynd: Aðsend Kolbrún Sara Ósk Kristinsdóttir, býr á Kirkjustétt í Grafarholtinu ásamt eiginmanni og börnum. Síðustu þrjú, fjögur ár hefur gangstétt við götuna ekki verið...
InnlentSanna: „Engin velferðarborg sættir sig við þá staðreynd að fjöldi barna fari svöng að sofa“27. janúar 2024 Sanna Magdalena Mörtudóttir segir að ekki sé hugað að öllum íbúum Reykjavíkurborgar, hinir fátæku sitji á hakanum. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, skrifaði færslu á Facebook þar sem hún fór yfir fund borgarstjórnar Reykjavíkur um fátækt og ójöfnuð sem haldinn var á dögunum en þar barst talið að fátækt barna. „Ég hélt að umræðan um slíkt yrði auðveldari með tímanum...
InnlentKjartan vill hækka laun unglinga borgarinnar: „Sýnir mikilvægu vinnuframlagi þeirra óvirðingu“23. júní 2023 Sjálfstæðisflokkurinn vill uppfæra laun unglinga í Vinnuskóla Reykjavíkur í samræmi við launavísitölu Hagstofu Íslands. Kjartan Magnússon lagði fram tillögu á fundi borgarráðs Reykjavíkur í gær, fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, varðandi laun unglinga í Vinnuskóla Reykjavíkur. Áður hafði borgarstjórn ákveðið að halda laununum óbreyttum frá síðasta ári, þrátt fyrir verðbólgu í landinu. Lagði Kjartan til að tímalaunin verði uppfærð á milli ára...
InnlentReykjavíkurborg felur umdeild samskipti í Youtube myndbandi: „Vertu bara harður við þau“20. júní 2023 Youtube myndband Reykjavíkurborgar sem sýndi fund íbúaráðs Laugardals hefur verið tekið út af miðlinum og sett aftur inn. Samskipti tveggja starfsmanna borgarinnar, Eiríks Búa Halldórssonar, verkefnastjóra verkefnisins Hverfið mitt og Guðnýjar Báru Jónsdóttur, verkefnastjóra hjá lýðræðis-og mannréttindastofu, hafa verið falin í myndbandinu. DV greindi fyrst frá mistökum Eiríks Búa sem urðu til þess að skilaboð á milli hans og Guðnýjar...