Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Blátt bann við að ráða tiltekinn gítargaulara“

„Blátt bann við að ráða tiltekinn gítargaulara“

Mál Ingós Veð­urguðs, sem sak­aður hefur verið um kyn­ferð­is­áreiti og kyn­ferð­is­of­beldi af tugum kvenna, er alltaf að „stækka“ og hefur tekið á sig ótal birt­ing­ar­myndir, og hér eru tvær.

Formaður Nem­enda­fé­lags Borg­ar­holts­skóla, Jón Bjarni Snorra­son, greindi frá því á Twitter-reikn­ingi félags­ins að bannað hafi verið að bóka Ingólf Þór­ar­ins­son – Ingó Veðurguð – á skemmt­anir á vegum félags­ins og skól­ans í rúm átta ár. Megi þá ákvörðun rekja til þess að „stjórn 2012-2013 ein­fald­lega heyrði „flökku­sögu“ um Ingólf og kaus að banna fram­tíðar stjórn­ar­með­limum nem­enda­fé­lags­ins að bóka Ingó Veðurguð. Þetta kemur fram í árs­skýrslu stjórnar 2012-2013.“

Sjá einnig: Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

Síðan þá hefur Ingó verið á bann­list­anum og er þar enn, en þó var hann bók­aður á eina skemmtun árið 2018, og urðu deilur um þá ákvörðun innan skól­ans. Þetta kemur fram á áður­nefndum Twitter-reikn­ingi en þar gagn­rýnir Jón Bjarni harð­lega, sem og stjórn nem­enda­fé­lags­ins 2021-2022, þá ráðn­ingu vet­ur­inn 2017-2018.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hangir uppi blað á skrif­stofu skóla­fé­lags­ins þar sem stendur stórum stöfum: „Ekki bóka Ingó á ball.“ Er Ingó sam­kvæmt sömu heim­ildum sá eini sem er á bann­lista nem­enda­fé­lags Borg­ar­holts­skóla.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Í áður­nefndu árs­skýrslu nem­enda­fé­lags­ins um gang mála vet­ur­inn 2012-2013, kemur fram að reynt hafi verið að banna Ingó Veðurguð frá skemmt­unum á vegum skól­ans; það skráð í reglur nem­enda­fé­lags­ins; ein­hverjir í stjórn­inni hafi þó mót­mælt því og sagt að ekki mætti banna ein­staka tón­list­ar­menn. En engu að síður var Ingó settur á bann­lista.

Annað dæmi sem einnig má benda á er að fram­kvæmda­stjóri Bleika fíls­ins, for­varn­ar­hóps í Eyjum sem vinnur gegn nauðg­unum, Jóhanna Ýr Jóns­dóttir tjáði sig um mál Ingós á Facebook.

Sagði meðal ann­ars að „ég hef tekið eftir því und­an­farið að heimur sam­fé­lags­miðla á Íslandi skipt­ist í tvennt. Þeir sem eru á Twitter og svo þeir sem eru ekki á Twitter. Því þeir sem eru ekki á Twitter virð­ast ekki vita að Samfés, ÍTR og hinir ýmsu skólar hafa lagt blátt bann við að ráða til­tek­inn gít­ar­gaul­ara síð­ustu ár vegna ein­stak­lega óvið­eig­andi sam­skipta hans við barn­ungar stúlkur,“ og bætir við:

„Þau sem eru ekki á Twitter virð­ast ekki hafa séð skets frá Steinda jr síðan 2009 um þessi sömu óvið­eig­andi sam­skipti.“ Jóhanna seg­ist ekki skilja „af hverju ENGIR af þessum stjórn­endum sem hafa síð­ustu tíu ár amk vitað þetta en litu undan, hafi ekki stigið fram núna.

Sjá einnig: Sögur um Ingó safn­ast upp á Reddit – Veð­urguð­inn bar fyrir sig minnis­leysi hjá Sölva

Þannig að, þið getið hætt að öskra á þessar ungu stúlkur (sem urðu þolendur sem börn btw), það er heill haf­sjór af full­orðnu fólki þarna úti sem VISSI en þau gerðu ekk­ert.

Þögnin frá þeim er meira sker­andi en nokkuð annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi