Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ingó Veðurguð í viðtali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyðileggja mannorð mitt“

Ingó Veðurguð í viðtali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyðileggja mannorð mitt“
Mynd / Skjáskot RÚV.

„Það eru fárán­legir hlutir sagðir um mig á net­inu. Þetta er sumt svo ljótt sem er skrifað um mig og glóru­laust,“ segir tón­list­ar­mað­ur­inn Ingólfur Þór­ar­ins­son, betur þekktur sem Ingó veð­urguð, í kjöl­farið á því að aðgerða­hóp­ur­inn Öfgar birti um helg­ina nafn­lausar frá­sagnir rúm­lega 20 kvenna sem lýsa kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni af hálfu þekkts tón­list­ar­manns, Ingós. Þá hafa sögur og frá­sagnir tengdar honum tengst seinni #metoo-bylgj­unni á Íslandi og þá sér­stak­lega á sam­fé­lags­miðl­unum Twitter og TikTok. 

Þjóð­há­tíð­ar­nefnd sendi svo í morgun frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kemur fram að Ingólfur muni hvorki koma fram á þjóð­há­tíð í ár né stýra brekku­söngnum eins og gert var ráð fyrir. Þjóð­há­tíð­ar­nefnd fékk fyrir helgi und­ir­skrifta­lista 130 íslenskra kvenna þar sem því er mót­mælt að Ingólfur stýrði brekku­söngnum.

„Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt svona þannig að ég bregst við þessu eftir réttum leiðum,“ segir Ingólfur sem er búinn að fá sér lög­fræð­ing og seg­ist halda utan um allt sem skrifað sé um sig, bæði varð­andi kon­urnar 20 og á kommenta­kerfum. „Og ég er ósáttur við ákvörðun Þjóð­há­tíð­ar­nefndar,“ segir Ingólfur sem seg­ist ekki vera í jafn­vægi til að meta það núna hvort hann muni síðar ef til þess kæmi vera beð­inn um að koma fram á Þjóð­há­tíð. 

„Ég er reiður yfir ýmsu; það er ekki gott að taka neinar ákvarð­anir þannig.“

Lög­fræð­ing­ur­inn mun vinna í tengslum við nafn­laus frá­sagn­irnar og er Ingólfur spurður hvort hann muni gera eitt­hvað varð­andi Þjóð­há­tíð­ar­nefnd.

„Ég mun svara eftir réttum leiðum alls staðar þar sem mér finnst það vera rétt og þar sem mér finnst vera komið rangt fram. Ég vissi svo sem að það er hægt að segja allt mögu­legt á kommenta­kerfum en það sem kom mér á óvart er hversu ljóta hluti er hægt að setja fram um fólk án þess að borin sé ábyrgð á því. Þetta er nafna­laust. Ég mun reyna að finna út hvaðan þetta kemur. Það eru bornar á mig ótrú­legar sakir. Ég hef hug­myndir um hvaðan þetta kemur en ég held að það sé ekki gott að fara sömu leið og við­kom­andi og saka fólk um ein­hverja hluti þannig að ég mun fara rétta leið með þetta. Það mun koma í ljós hvaða konur þetta eru. Ég er viss um það.“

Ingólfur er spurður hvort hann hafi lesið allar lýs­ingar kvenn­anna.

„Já“.

Kannast hann ekki við neinar þeirra?

„Nei.“

Mogginn teikn­aði Ingó.

Ingólfur barð­ist við Bakkus áður fyrr og hefur sagt frá því tíma­bili í við­tölum. Í hlað­varps­þætt­inum Milli­veg­inum sagði hann í febr­úar 2019: „Ég var aldrei gæinn sem fór úr að ofan uppi á borði, heldur meira þannig að það tók því aldrei fyrir mig að fara út að borða og fá mér eitt vín­glas eða öl. Það þurftu alltaf að vera fjórtán bjórar, átta tópas­skot, tveir sígar­ettu­pakkar og svo helst það sama dag­inn eftir.“ Og í Vísis-við­tali í júní sama ár sagði hann: „ „Þetta voru aldrei 2-3, svona 20-30 frekar, á hverju kvöldi og haldið áfram. Svo var maður bara orð­inn bens­ín­laus í tón­list­ar­brans­anum. Hvort sem að áfengið hafi valdið því eða að ég hafi bara keyrt mig út og hafi notað brenni­vínið til að halda mér gang­andi.“ Ingólfur seg­ist hafa fengið aðstoð árið 2018 varð­andi drykkj­una. 

Blaða­maður Mannlífs spyr Ingólf hvort hann muni alltaf það sem gerð­ist vegna þess­arar miklu drykkju meðal ann­ars eftir tón­leika.

„Já, ég veit alla­vega hvar ég var. Já, ég veit hvað ég hef verið að gera. Það eru ekki svona hlutir eins og búið er að skrifa að ég hafi gert.“

Ingó seg­ist ætla að berj­ast og verja mann­orð sitt.

Þekktur tón­list­ar­maður. Mynd­ar­legur. Hafa stelpur og konur verið á eftir honum?

„Það hefur alltaf verið eitt­hvað um það í gegnum árin.“

Hvernig hefur hann brugð­ist við þegar þær hafa sýnt honum áhuga?

„Það er bara allur gangur á því. Það er bara mis­jafnt.“

Ingólfur segir að það sem sé í gangi núna gegn sér muni ekki gera þeim gott sem verða fyrir ofbeldi.

„Þegar það er logið upp á ein­hvern og ógeðs­legir hlutir sagt um ein­hvern þá held ég að það hjálpi ekki þegar ein­hverjir vilja svo segja raun­veru­legar sögur af ofbeldi.“

Auðvitað líður henni illa

Ingólfur er spurður út í and­lega líðan sína síð­ustu daga.

„Ég hef aldrei verið þannig týpa sem er mikið að lýsa and­legri líðan. Ég reyni frekar að takast á við hlut­ina á réttan hátt ef þeir valda mér van­líðan. Þetta nýjasta er eitt­hvað sem ég tekst á við með réttum aðferðum. Þetta hefur haft verst áhrif á þá sem standa mér næst. Það eina sem ég get gert er að halda áfram og gera mitt og svo verður þessu svarað eftir réttum leiðum. Ég bara skipu­legg það sem ég þarf að gera og svara þessu eftir mínum leiðum. Þá líður mér betur.“

Ingólfur á kær­ustu í dag.

Auðvitað líður henni illa. Ég veit að henni líður illa en það þarf að fara rétta leið að þessu og svara þessu.“

Hann er spurður hvort hann sé róm­an­tískur þegar hann er í sam­bandi.

„Örugg­lega bara annað slagið.“

Á hann upp­á­halds róm­an­tískt lag?

„Já, ég á nokkur þannig. Ég held mikið upp á Elton John. Mér finnst „Your Song“ alltaf vera fal­legt lag.“

Your song eða Ég veit þú kemur. Þessi ágjöf í dag mun ekki stoppa Ingó veð­urguð í að koma fram sem tón­list­ar­maður þótt hann vilji fyrst að storm­inn lægi að mestu áður en hann siglir aftur frá landi. 

Öfgar sendu frá sér til­kynn­ingu vegna máls Ingós. Mynd / Ernir Eyj­ólfss­son Birtíngur

„Ég mun halda áfram en ég þarf fyrst að takast á við þetta almenni­lega,“ segir Ingólfur en bætir þó við að þar sem hann hafi í gegnum árin spilað og sungið á flestum stöðum á land­inu muni hann í fram­tíð­inni vera með tón­list­ina sem hlið­ar­verk­efni með öðru en þess má geta að Ingólfur rekur ásamt fleirum fyr­ir­tæki sem flytur inn ýmsar vörur, svo sem hreinsi­efni, frá Skotlandi.

Í fyrra var það heims­far­ald­ur­inn Covid-19 sem kom í veg fyrir að Ingólfur kæmi fram í brekku­söngnum og var hann þá í beinni útsend­ingu í flöt í Mos­fellsbæ og söng þar fyrir lands­menn. Nú er það þetta mál. Hann segir að hann hafi ekki verið far­inn að æfa lög fyrir brekku­söng­inn þar sem hann kann þessi lög svo vel en hins vegar hafi hann verið far­inn að setja sama laga­lista. Hvað ætlar hann að gera um versl­un­ar­manna­helg­ina í ár?

„Það er allt opið í því. Vinur minn er að hjálpa mér með allar bók­anir á tón­list­ar­verk­efnum og það kemur í ljós hvar ég verð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ