Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Baráttukonan Sanna:„Þegar við áttum ekki pening var ekki hægt að kaupa mat og þá borðuðum við ekki“

Baráttukonan Sanna:„Þegar við áttum ekki pening var ekki hægt að kaupa mat og þá borðuðum við ekki“
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, mann­fræð­ingur og borg­ar­full­trúi Sosí­alista­flokks­ins, ólst upp hjá ein­stæðri móður og þekkir fátækt af eigin raun þar sem þær mæðgur höfðu stundum ekk­ert til að borða jafn­vel í nokkra daga á æsku­árum Sönnu.

Móðir hennar var í fullri vinnu sem leik­skóla­starfs­maður og vann auk þess í nokkur ár við skúr­ingar á kvöldin til að drýgja tekj­urnar og segir Sanna að á þessum árum, frá því hún var um sjö til 10 ára gömul, hafi hún því aðal­lega séð mömmu sína á morgn­ana og um helgar:

„Þegar við áttum ekki pen­ing þá var ekki hægt að kaupa mat og þá var maður ekki að borða. Við fórum stundum í Mæðra­styrks­nefnd þar sem við fengum mat, fengum lán hjá ætt­ingjum og stundum fórum við með flöskur sem við áttum til að selja. Á tíma­bili áttum við ekki einu sinni ísskáp. Ég man þegar ég var einu sinni heima hjá vin­konu minni og sá hvar þar var til mikið af pottum og alls konar kryddi. Ég hugs­aði með mér hvað þau væru rík.“

Sanna rifjar upp afmæl­is­boð til ann­arrar vin­konu þegar þær voru stelpur:

„Við gátum ekki keypt gjöf handa henni og átti ég nýlegan, bleikan penna­stand og ég gaf henni hann í afmæl­is­gjöf. Mér fannst það vera leið­in­legt af því að ég vildi eiga hann áfram en ég skildi samt að ég þurfti að gefa henni gjöf og það var gaman að mæta til hennar með gjöf. Það var gott að geta reddað þessu svona en erfitt að geta ekki átt þetta í friði.“

Sanna minn­ist þess þegar hún spurði mömmu sína og ömmu hvort allt yrði ekki auð­veld­ara ef hún væri ekki inni í mynd­inni þegar mamma hennar var að biðja ömmu hennar um lán.

Hún seg­ist hafa litið á þetta sem reikn­ings­dæmi:

„Þeim brá svo mikið að ég skyldi vera að velta þessu fyrir mér. Ég var ekk­ert að hugsa um að ég ætl­aði að hverfa af þess­ari jörð. Alls ekki. En þær skildu það þannig.“

Hún segir að þegar hún líti til baka hafi sér alls ekki almennt liðið illa út af ástand­inu:

„Það er hins vegar ekki eðli­legt að lítið barn sé að von­ast til þess að það komi eitt­hvað gott inn á leigu­list­ann eða að lítið barn sé spennt fyrir des­em­ber­upp­bót.“

Hún seg­ist hafa lært að lifa með þessu og segja ekki neitt. Hún ætl­aði einu sinni í bíó með vin­konu sinni og var bent á að hún þyrfti pen­ing:

„Í stað þess að segja að ég ætti ekki fyrir þessu þá hljóp ég heim til mömmu og bað hana um að biðja ömmu um lán fyrir bíó­ferð­inni.“

Sanna er spurð hvað hafi verið erf­ið­ast á æsku­ár­unum:

„Það teng­ist ekki því að við áttum oft ekki mat, að þurfa að fara í Mæðra­styrks­nefnd til að fá gef­ins mat eða hjóla í kulda með flösku­poka til að fá klink. Það var þegar mig lang­aði í tusku­dýr í Euro Shopper sem var ekki hægt að kaupa. Ég er alls ekki að segja að börn eigi að fá allt sem þau biðja um en þetta stendur upp úr. Það var líka erfitt að horfa upp á hvað ástandið hafði slæm áhrif á mömmu; að vita til þess að hún hafi verið svöng og neitað sér um ýmis­legt og svo nei­kvæðu áhrifin á sál­ar­líf hennar en hún hefur alltaf sett mig í fyrsta sæti.“

Álagið hafði þau áhrif á móður Sönnu að hún fór að upp­lifa mik­inn kvíða og fór á örorku­bætur áður en Sanna komst á ung­lingsár:

„Fátækt er mann­skemm­andi og hún er svo við­bjóðs­leg að maður skilur ekki að það sé hægt að rétt­læta það að borga fólki lág laun.“

Áhrifin í dag

Reynsla Sönnu af fátækt­inni á æsku­heim­il­inu hefur áhrif í dag:

„Ég fæ til dæmis sam­visku­bit ef ég kaupi góð heyrn­ar­tól. Þá hugsa ég með mér af hverju ég sé að setja pen­ing­inn í þau. Mér finnst vera erfitt að sleppa tak­inu; að finna að það megi gera ýmis­legt. Stundum finnst mér til dæmis ekki vera neitt mál að tala um ástandið eins og það var en svo finnst mér stundum vera bara erfitt að hugsa um það. Það er sárt að gera það; að hugsa um að ég gat ekki gert hitt og þetta svo sem að læra dans. Maður var alltaf að pressa niður það sem maður vildi og ein­hvern veg­inn að sussa á sjálfan sig.

Ef ég heyri í sjúkra­bíl í dag þá kipp­ist ég til og hugsa með mér hvort mamma sé í bílnum en ég hef þurft að hringja á sjúkra­bíl þegar henni hefur liðið illa í kvíða­kasti. Þetta eru kannski langvar­andi afleið­ingar að koma í ljós hjá mér. Ég sendi mömmu til dæmis sms um dag­inn og hún svar­aði ekki og þá hugs­aði ég með mér hvort hún væri komin á sjúkra­hús. Fólk sér ekki endi­lega skila­boð strax. Ég hugs­aði síðan með mér hvort ég byggði við­brögð mín á stað­reyndum eða ein­hverju öðru. Ég býst stundum við því versta.“

Sanna upp­lifir ekki ein­göngu nei­kvæðar til­finn­ingar í dag í tengslum við fátækt­ina á æsku­ár­unum. Hún segir að það sé jafn­framt efl­andi að geta sett sig í ýmsar aðstæður í dag:

„Þetta var hins vegar ekki heil­brigt fyrir sjálfs­mynd­ina og það er svo margt sem maður fattar ekki að sé óeðli­legt. Ég myndi kannski ekki segja að þetta hafi veikt sjálfs­mynd­ina en þetta hefur gert það að verkum að ég er með minni vænt­ingar en ella.“

Hún talar um þvotta­vél­ina sína sem hún seg­ist elska:

„Hún er ný og hún hefur aldrei bilað. Ég veit ekki hversu oft við mamma vorum í þvotta­véla­ves­eni og það eru mikil lífs­gæði að eiga þessa þvotta­vél. Kannski elskar fólk þvotta­vél­arnar sínar jafn­mikið og ég elska mína. Ég veit það ekki.“

Hún hlær:

„Mér finnst fólk oft taka hlut­unum sem sjálf­sögðum en sumir fatta ekki að 1200 kall getur verið mik­ill pen­ingur fyrir aðra.“

Í borgarmálunum og kannski seinna á þing

Sanna er einn af stofn­endum Sós­í­alista­flokks­ins og hefur sem borg­ar­full­trúi und­an­farin þrjú ár unnið að hag þeirra sem búa við slæmar aðstæður. Segir að það sé þó sorg­legt hvað lítið hafi breyst á þessum tíma:

„Ég las nýlega 20 ára gam­alt við­tal við mömmu og mér finnst þetta geta verið saga svo margra í dag og það er erfitt að vita til þess. Það er til nægur pen­ingur í þessu landi og við þurfum að skipta kök­unni betur. Það er sorg­legt að vita til þess að fátæk­asta fólkið þurfi í raun að borga hlut­falls­lega meiri skatta af tekjum sínum en efn­aða fólkið sem þarf ekki að borga skatta af fjár­magnstekjum. Ég myndi vilja að sveit­ar­fé­lögin myndu þrýsta á að því yrði breytt og að það yrðu sett lög um þetta. Ég vil að allir geti búið við öruggar aðstæður og að allir fái að dafna.“

Sanna segir að sér finn­ist hún vera nýbyrjuð sem borg­ar­full­trúi og vill hún halda áfram að vinna í borg­ar­mál­unum. Þess má geta að hún er í 11. sæti í Reykja­vík norður fyrir Sós­í­alista­flokk­inn í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Hvað ef hún kemst á þing í fram­tíð­inni. Hver yrðu áherslu­málin?

„Skatta­mál, heil­brigð­is­mál og vel­ferð­ar­mál. Það þarf að tryggja að litið sé á þetta sem grunn­þjón­ustu en ekki að þetta yrði einka­vætt. Og það þarf að tryggja að til dæmis öryrkjar og eldri borg­arar geti lifað góðu lífi. Það þarf líka að heyra meira raddir fólks­ins í land­inu. Það er ekki endi­lega stjórn­mála­fólkið sem veit best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una