Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lenya Rún fengið ótal nafnlaus fordóma skilaboð: „Ég er minnt á að ég sé brúnni en margir“

Lenya Rún fengið ótal nafnlaus fordóma skilaboð: „Ég er minnt á að ég sé brúnni en margir“
Lenya Rún

„Síðustu vikur og mán­uði hef ég reynt að vera sýni­leg í fram­boði mínu til Alþingis, enda er það venjan í kosn­inga­bar­áttu. Það hefur hins vegar farið fyrir brjóstið á mörgu fólki, ekki vegna þess að ég er Pírati og þau eru ósam­mála mér, heldur vegna þess að þau telja mig vera „útlend­ing” segir Lenya Rún Taha Karim og bætir við:

„Ég hef fengið ótal nafn­laus skila­boð á sam­fé­lags­miðlum að und­an­förnu þar sem ég er minnt á að ég sé brúnni en margir. Svo er nafnið mitt líka öðru­vísi. Það eitt og sér er nóg fyrir nafn­lausa liðið til að efast um kjör­gengi mitt. Það er algjör óþarfi að fara út í efni skila­boð­anna, þetta er bara gam­al­dags ras­ismi sem ég hef heyrt margoft áður.“

Lenya Rún segir að „það sem nafn­lausa liðið veit hins vegar ekki er að ég er ekki sér­stak­lega mik­ill útlend­ingur. Ég er fædd og upp­alin í Kópavogi og hef búið nær allt mitt líf á Íslandi. Ég gekk í Sala­skóla, Mennta­skól­ann við Sund og síðan Háskóla Íslands. Ég er með traust örygg­is­net á Íslandi; ég á fjöl­skyldu hér, góða vini og bý í öruggu hús­næði. Ég er því í betri stöðu en mörg – ekki síst þegar horft er til þeirra fjöl­mörgu „raun­veru­legu” útlend­inga sem láta þetta sam­fé­lag okkar ganga.“

Hún bendir á þá stað­reynd að um „fimmti hver á íslenskum vinnu­mark­aði er af erlendu bergi brot­inn. Sama hvort það er í ferða­þjón­ustu, fisk­vinnslu, veit­inga­rekstri, félags­þjón­ustu eða bygg­ing­ar­iðn­aði þá eru útlend­ingar á Íslandi ómissandi. Ég end­ur­tek: Ísland myndi ein­fald­lega ekki ganga án útlend­inga.“

Og bætir við:

„Við lifum hins vegar á tímum þar sem hat­urs­orð­ræða í garð útlend­inga og Íslend­inga með erlendan bak­grunn fær að grass­era. Þar sem nas­istar festa haka­krossa á aug­lýs­inga­skilti af Birtu vin­konu minni og skrifa „Við erum alls staðar.” Þetta er alvar­leg þróun og það væri ábyrgð­ar­laust að taka hana ekki alvar­lega,“ og spyr:

„Hvað er hægt að gera?“

Lenya Rún seg­ist oft þurfa að spyrja sjálfa sig oft „hvernig hægt sé að upp­ræta vand­ann en ekki ein­ungis ráð­ast að birt­ing­ar­myndum hans. Ég ótt­ast hins vegar að það sé hvorki ein né ein­föld lausn við þessu. Það væri að minnsta kosti frekar súrt ef lausnin væri ein­föld en við hefðum samt ekki hrint henni í fram­kvæmd.“

Hún óskar þess að lög­reglan og dóms­kerfið myndu taka „harðar á fólki sem bein­línis hvetur til ofbeldis gegn þeim sem eru öðru­vísi en það sjálft. Það eru ein­fald­lega til mýmörg dæmi um það hvernig óáreitt hat­urs­orð­ræða leiðir til raun­veru­legra hat­urs­glæpa. Ef stjórn­völd og stjórn­mála­fólk myndu senda skýr skila­boð um að slíkur munn­söfn­uður sé ekki aðeins óæski­legur heldur bein­línis hættu­legur þá myndi það vita­skuld hafa ein­hver áhrif. En það myndi samt sem áður ekki ráð­ast að rót vand­ans.“

Hún nefnir að „við tölum oft um að auð­velda útlend­ingum að aðlag­ast sam­fé­lag­inu á Íslandi – sem er auð­vitað gríð­ar­lega mik­il­vægt. Það gerir engum gott að vera horn­reka í sam­fé­lag­inu, hvort sem það eru útlend­ingar eða Íslend­ingar. Þess vegna er svo mik­il­vægt að styðja við fjöl­menn­ing­ar­setur, íslensku­nám og aðra kennslu sem auð­veldar fólki að kom­ast inn í sam­fé­lagið sem fyrst og byrja að gefa af sér.“

Bætir við:

„Við tölum hins vegar minna um hina hlið­ina á pen­ingnum. Að auð­velda Íslend­ingum að aðlag­ast útlend­ingum. Eins og ég sagði áður þá eru útlend­ing­arnir í íslensku sam­fé­lagi fjölda­margir og auð­vitað eru það við­brigði fyrir fólk þegar allt í einu heyr­ast ólík tungu­mál á vinnu­staðnum og fólk með fram­andi nöfn og öðru­vísi lit­ar­haft eru á hverju strái. Það er eðli­legt að ein­hverjum finn­ist það óvenju­legt og við megum ekki gera lítið úr því.

Þvert á móti held ég að það væri miklu far­sælla að við hefðum það í huga og ávörp­uðum það, hvort sem það væri í formi ein­hverrar her­ferðar eða form­legrar fræðslu. Fyrsta skrefið gæti til dæmis verið sam­fé­lags­á­tak um mik­il­vægi útlend­inga fyrir íslenskt þjóð­fé­lag. Ef við viljum tryggja góð lífs­kjör hér til fram­tíðar þá getum við ein­fald­lega ekki án þeirra verið.

Ég er ekki á hött­unum eftir neinni með­aumkun. Ég hef lifað við rasísk skila­boð og fram­komu allt mitt líf. Ég var fyrsti brúni nem­and­inn í skól­anum mínum í Sala­hverfi og hef verið kölluð allt sem þú getur ímyndað þér. Það hefur ekki stoppað mig til þessa og það stoppar mig ekki núna,“ segir ákveðin Lenya og heldur áfram:

„Ég býð mig fram því ég vil rót­tækar breyt­ingar í þágu íslenskra náms­manna. Ég býð mig fram því ég vil rót­tækni í lofts­lags­málum. Ég býð mig fram því ég vil koma fram við vímu­efna­neyt­endur eins og mann­eskjur, ekki glæpa­menn.

Ég býð mig fram því ég vil vera þessi fyr­ir­mynd í stjórn­málum sem ég hafði ekki þegar ég var yngri og hvetja annað fólk af erlendu bergi brotnu til að taka þátt í stjórn­málum. Við erum líka hluti af þessu sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi