Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sandra sálfræðinemi fékk Covid: „Lungun mín eru eyðilögð og ég bara 21 árs.“

Sandra sálfræðinemi fékk Covid: „Lungun mín eru eyðilögð og ég bara 21 árs.“
Sandra Ósk Mynd: Facebook

Sandra Ósk Jóhanns­dóttir, 21 árs sál­fræði­nemi við Háskóla Íslands, fékk Covid í maí síð­ast­liðnum og er enn að kljást við eft­ir­köst. Læknar hafa ekki viljað taka röntgen­mynd af lungum hennar þrátt fyrir mikla önd­unarörð­ug­leika. Þeir segja henni að hún sé með kvíða.

„Ég gat ekki sofnað fyrr en klukkan hálf 7 í morgun þar sem ég náði ekki and­anum í alla nótt. Pabbi þurfti að kíkja á mig í alla nótt til að vera viss um að ég væri ekki með­vit­und­ar­laus. Ekki segja mér að covid sé eins og venju­leg flensa. Lungun mín eru eyðilögð og ég bara 21 árs.“

Þetta skrif­aði Sandra Ósk á Twitter nýverið. Í sam­tali við blaða­mann Mannlífs segir hún að ekki hafi verið búið að bólu­setja hennar árgang þegar hún fékk Covid. Hún hafi áður verið mjög heilsu­hraust ung kona, ekki með neinn und­ir­liggj­andi sjúk­dóm. Hún er ekki ánægð með við­brögð lækna.

„Lækn­arnir eru líka mikið að gera lítið úr ein­kennum og skrifa þetta á kvíða en ég er búin að fá marga ein­stak­linga sem eru með nákvæm­lega sömu ein­kenni og oft margar ungar stúlkur á mínum aldri. Ég held að það sé ein­fald­lega ekki geta, nenna né nógu margar rann­sóknir á eft­ir­köstum og fylgi­kvillum covid til að eitt­hvað sé hægt að gera með fullri alvöru. Bóluefni voru ekki í boði fyrir minn ald­urs­hóp þegar ég smit­ast en samt sem áður veit ég líka um til­vik hjá mann­eskjum sem hafa fengið bólu­setn­ingu sem upp­lifa þessi ein­kenni.“

Sandra Ósk sýndi blaða­manni einnig færslu úr lok­uðum Facebook-hópi þar sem hún fer nánar í ein­kenni eft­irkast­anna.

„Er búin að fá þetta núna tölu­vert í sturtu eins og gufan sé að gera mér erfitt fyrir. Í gær var ég upp í rúmi að chilla þegar ég skyndi­lega missi and­ann og byrja að hlaupa um allt hús eins og haus­laus hæna því mér leið eins og ég væri að deyja. Búin að vera með svakala­legan þunga í lung­unum síðan þá. Seinast þegar ég missi and­ann svona var ég að keyra og fékk líka svona gríð­ar­legan þunga í lungun í ein­hverja daga eft­irá. Ég fór á heilsu­gæslu og læknir sagði að það væri í lagi með mig og að þetta væri örugg­lega bara kvíða­köst. Þetta eru samt ekki kvíða­köst og það er eng­inn fyr­ir­vari fyrir þessu,“ skrifar Sandra Ósk og fær tölu­verð við­brögð frá les­endum.

Ein konan seg­ist kann­ast vel við þessi ein­kenni en hún hafði fengið Covid fyrir þremur mán­uðum. Hún hafi þó verið full­bólu­sett með Pfizer.

Eva nokkur seg­ist kann­ast við þetta.

„Ég er ekki alveg eins slæm og þú lýsir en ég er búin að fá líka mikil and­þyngsli og eins og ég sé ekki að fá nóg súr­efni inn. Ég er búin að fara í lungna­mynda­töku og láta hlusta mig 2x og ekk­ert kom úr því :// heimt­aði púst frá lækni hefur lag­ast þá en stundum fæ ég þetta ennþá :(“

Elín fékk Covid í fyrra og er enn slæm.

„Ég er svona eftir covid, veikt­ist í mars 2020. Varð mjög veik og lá á spít­ala. Hef verið að hitta lungna­lækni og er á lyfjum, lungun eru aðeins í 40%“

Í loks sam­tals­ins við blaða­mann Mannlífs seg­ist Sandra Ósk ekki vera bjart­sýn.

„Ég held að það sé samt ekk­ert annað í stöð­unni en að heimta þessa mynda­töku og sjá hvort það sjá­ist eitt­hvað. Ég hef samt ekki miklar vonir miðað við það sem aðrir segja mér með sömu ein­kenni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi