Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aron Einar og Eggert búnir að segja lögreglu sögu sína vegna kynferðisbrots

Aron Einar og Eggert búnir að segja lögreglu sögu sína vegna kynferðisbrots
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Samkvæmt frétta­stofu RÚV hafa þeir Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, og Eggert Gunnþór Jónsson, knatt­spyrnu­maður hjá FH, báðir gefið skýrslu hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er varðar rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­broti í Kaup­manna­höfn fyrir ell­efu árum síðan. Mannlíf opn­aði á málið og greindi fyrst frá frá­sögn fórn­ar­lambs­ins.

Greint var frá því í lok sept­em­ber að lög­regla hefði tekið upp rann­sókn á mál­inu að nýju, að beiðni brota­þola. Báðir hafa þeir Aron Einar og Eggert Gunnþór sent frá sér yfir­lýs­ingar þar sem þeir halda fram sak­leysi sínu í mál­inu.

Samkvæmt RÚV fóru skýrslu­tök­urnar yfir báðum mönn­unum fram í vik­unni.

Aron Einar hefur ekki verið val­inn í íslenska lands­liðs­hóp­inn í und­an­förnum leikjum og er það talið vera vegna þessa máls. Aron Einar hefur sjálfur full­yrt að það hljóti að vera vegna sögu­sagna um meint brot.

Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar, sagði í lok októ­ber að góðar ástæður væru fyrir hendi til þess að opna málið að nýju. Hefði það að gera með ný gögn sem lög­regla hefði undir höndum. Í sam­tali við frétta­stofu RÚV segir hann nú að rann­sókn­inni miði vel. Hann vill þó ekki tjá sig um málið að öðru leyti.

Aron Einar kvaðst í yfir­lýs­ingu sinni sak­laus af ásök­unum og sagði sig fórn­ar­lamb úti­lok­un­ar­menn­ingar KSÍ vegna óljóss orðróms.

Eggert Gunnþór sendi sömu­leiðis frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann lýsti sig full­kom­lega sak­lausan af ásök­un­unum.

Sjá einnig:

Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi