Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Anna Kristjáns hraunar yfir heimalandið: „Á Íslandi er veðrið nánast alltaf vont“

Anna Kristjáns hraunar yfir heimalandið: „Á Íslandi er veðrið nánast alltaf vont“
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Krist­jáns­dóttir skrifar um veðrið og nýjasta ráð­herra Sví­þjóðar í bráð­skemmti­legum pistli sínum á Facebook í dag. Anna hefur haldið úti færslum á Facebook í 842 daga en þá skrifar hún á Tenerife, þar sem hún býr.

Í nýjasta pistli sínum talar hún um mun­inn á veðr­inu á Íslandi og á Tenerife.

„Ég heyrði eitt sinn ein­hvern Íslend­ing kvarta yfir veðr­inu á Tenerife. Það væri hund­leið­in­legt að vera þar sem alltaf væri sama veðrið, eitt­hvað annað en á Íslandi þar sem væri fjöl­breytt veð­ur­far. Ég er þessu ósam­mála. Það er vissu­lega oft­ast gott veður á Tenerife, en samt er veðrið mjög fjöl­breytt,“ skrifar Anna í byrjun pistils­ins. Og hún heldur áfram.

„Á Íslandi er veðrið vont, það er marg­breyti­legt en nán­ast alltaf vont. Þar ríkir kuldi og þar ríkir bleyta eða snjó­koma. Ef að kemur fyrir að að sést til sólar er venju­lega svo kalt að best er að halda sig inn­an­dyra og kall­ast slíkt glugga­veður. Stundum verður veðrið veru­lega vont. Það kall­ast bræla ef er til sjós, ann­ars rok og rign­ing ef er á þurru landi. Við skulum ekk­ert nefna ísing­ar­veðrin, stundum kölluð mann­dráps­veður. En það er sjaldn­ast gott veður á Íslandi. Ég minn­ist þó eins dags í byrjun ágúst, senni­lega um 2006 sem hit­inn fór í 25,4°C í Reykja­vík og var kallað hita­met enda hita­bylgja í gangi að mati eyja­skeggja á Íslandi.“

En hvernig er þá veðrið á Tenerife?

„Á Tenerife er veðrið gott, það er marg­breyti­legt en nán­ast alltaf gott. Þar ríkir hlýja og þar ríkir sól­skin og bað­veður. Þá sjaldan sem ský dregur fyrir sólu er kvartað, en það kemur samt fyrir og rign­ingin á það til að koma um hávet­ur­inn. Verst af öllu eru samt Calima veðrin þegar sand­kornin í Sahara eyði­mörk­inni leggj­ast í ferða­lag á haf út og yfir okkur. Ef þau eru mild er það gott, en stundum verða þau slæm og þá er ekki gaman að vera á Tenerife. Ég minn­ist febr­ú­ar­dags árið 2020 þegar veðrið var svo slæmt að ferj­urnar rák­ust á hverja aðra í höfn­inni í Los Cristianos þar sem ekki sást handa minna skil, hvað þá á milli fingra skip­stjórn­ar­manna á ferj­unum. Allt flug lá niðri, en Bret­arnir mínir mættu samt á bar­inn og drukku sand­bland­aðan bjór­inn sinn.Í ágúst síð­ast­liðnum varð hita­bylgja, fór upp í 45°C á flug­vell­inum en var ein­ungis 32°C á sama tíma í Los Cristianos í fjórtán kíló­metra fjar­lægð. En ég hefi líka séð næt­ur­hit­ann fara niður í 13°C í jan­úar. Veðrið er svo sann­ar­lega marg­breyti­legt á Tenerife, en öfugt við Ísland, nán­ast alltaf gott. Þess vegna kýs ég að búa á Tenerife, en ekki á Íslandi því hér er ynd­is­legt að vera.“Í lok færsl­unnar drepur Anna laus­lega á nýja skóla­mála­ráð­herra Sví­þjóðar, trans­kon­una Linu Axelsson Kihlblom.„Ég hefi fengið nokkrar fyr­ir­spurnir síð­ustu dag­ana um nýja skóla­mála­ráð­herr­ann í Svíþjóð sem er trans­kona. Ég við­ur­kenni skömm mína. Ég man ekk­ert eftir henni. Það er auð­vitað mín skömm því hún var með­limur í För­en­ingen Benjamin þegar ég var virk þar og for­maður félags­ins í tvö ár. Lina Axelsson Kihlblom er fædd 24. júní 1970, fór í gegnum ferlið í Svíþjóð á svip­uðum tíma og ég, en fór í aðgerð til leið­rétt­ingar á kyni í ágúst 1995, þ.e. fjórum mán­uðum á eftir mér. Flott kona. Svo mörg voru þau orð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ