Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásmundur hundsvekktur meðan Gunnar Smári vill meira af Verbúð

Ásmundur hundsvekktur meðan Gunnar Smári vill meira af Verbúð
Mynd. Skjáskot/RÚV Mynd: Menningin

Ásmundir Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var ekki par ánægður með fyrsta þátt Verð­búðar sem Vest­ur­port stendur að og sýndur var í gær í Rík­is­sjón­varp­inu. Sakar hann Rúv um lands­byggð­ar­ras­isma. Annað er hægt að segja um álit Gunnars Smára Egils­sonar á þætt­inum þó hann hafi efa­semdir um að ráða­menn fái á bauk­inn í þætt­inum. Mis­mun­andi álit þeirra tveggja kemur kannski fæstum á óvart enda úr sitt­hvorri átt­inni, póli­tískt séð.

Ásmundur Frið­riks­son

Ásmundur þekkir lands­byggð­ina betur en flestir Íslend­ingar, ef marka má þær end­ur­greiðslur sem hann fær fyrir akstur um sveitir lands­ins á ári hverju en hann hefur verið akst­ur­s­kóngur Alþingis allar götur síðan hann komst á þing árið 2013. Skrifaði hann færslu á Facebook í gær­kvöldi þar hann jós úr bikar van­þakk­lætis yfir þátt­unum.

Sjá einnig: Ásmundur fengið rúmar 33 millj­ónir í öku­styrk – Enn og aftur öku­kóngur þings­ins

„Það er ekki oft sem ég sest við sjón­varpið. Gerði það þó í kvöld og horfði á Ver­búð­ina á Rík­is­út­varp­inu. Ég verð að segja eins og er að ég er orð­inn leiður á þessum lands­byggð­ar­ras­isma höf­uð­borg­ar­búa og Rík­is­út­varps­ins.

Í þessu fram­lagi rík­is­út­varps­ins til menn­ing­ar­innar í land­inu er dregin upp sú mynd af fólki í sjáv­ar­plássi að þar sé meira og minna um und­ir­máls­fólk. Topp skip­stjórar séu drykkju­sjúk­lingar sem láti troða amfetamíni í óæðri end­ann á sér. Samfarir þar sem ekk­ert er dregið undan en ljót­leik­inn í aðal­hlut­verki. Þá er fisk­vinnslu­fólkið ekki látið líta vel út eins ég upp­lifði það.“

Því næst tekur Ásmundur upp hansk­ann fyrir konum sem hann segir lít­il­lækk­aðar í þætt­inum.

„Þá eru konur lít­il­lækk­aðar með fárán­legu stripli sem engan til­gang hefur. Er þetta er menn­ing­ar­fram­lag Rík­is­út­varps­ins til Me too hreyf­ing­ar­innar.

Er ekki komin tími til að land­byggð­ar­ras­isma menn­ing­ar­vit­anna og Rík­is­út­varps­ins linni. Bar­áttu­málum Rík­is­út­varps­ins og sam­starfs­að­ilum þess má koma á fram­færi á annan hátt en gera lítið úr fólki sem vinnur mik­il­væg gjald­eyr­is­skap­and störf á lands­byggð­inni og í sjáv­ar­plássum allt í kringum landið.“

Gunnar Smári Egilsson, einn stofn­anda Sós­í­alista­flokks Íslands fagnar því að nú sé þjóðin búin að fá nýtt umræðu­efni í stað Covid-19.

Gunnar Smári Egilsson Mynd. Skjáskot/RÚV

„Hvað sem segja má um Ver­búð­ina þá hefur henni tek­ist að ná því besta út úr Facebook. Það er eins og þjóðin hafi beðið eftir að ræða eitt­hvað annað en cóvid, fólk er að brill­era í grein­ingum á hverju smá­at­riði. Og því veiga­mikla, eins og sam­býli fólks í þessu bless­aða landi. Hvers vegna var þjóð­inni ekki boðið upp á svona spegil miklu fyrr? Af öllu því efni sem búið er til sýn­ingar, þá er það helst ára­mótaskaupið sem almenn­ingur tekur sem að fjalli um sig. En við­brögðin við skaup­inu fjara út á einum, tveimur dögum (það er merki um sturlun að ræða skaupið eftir þrett­ánd­ann). En Verbúðin verður næstu tvo mán­uð­ina. Ef fram fer sem horfir munuð þið ná að end­ur­skrifa Íslands­sög­una og end­ur­meta alla þræði hennar á þeim tíma. Margar hendur vinna létt verk.“

Þá stingur Gunnar Smári upp á því að Rúv semji við Vest­ur­port um gerð fleirri syrpa um Verð­búð­ina.

„Ég vona að RÚV sé núna að ganga frá pöntun á þremur nýjum syrpum af Ver­búð­inni. Það er löngu kom­inn tími á íslenskt Matador. Ef tím­inn frá kvóta­kerfi að Hruni dugar ekki fyrir þrjár nýjar ser­íur má búa til for­sög­una, kynna okkur fyrir for­eldrum þessa fólks, öfum og ömmum; stríðs­brask­inu, þorska­stríð­unum, flutn­ingum fólks úr sveit í bæ og svo suður til Reykja­víkur, átökum milli kynja, kyn­slóða og stétta og frels­is­bar­áttu allskyns hópa. Það vantar sög­una af því hvernig verka­lýðs­hreyf­ingin var skipu­lega veikluð, hvernig bæj­ar­út­gerð­irnar voru byggðar upp og rændar, hvernig rík­is­vald­inu var beitt til að halda almenn­ingi niðri.“

Að lokum lýsir Gunnar Smári áhyggjum sínum um þætt­ina.

„En gall­inn við svona þátt­araðir, sem hafa það að meg­in­mark­miði að sam­eina þjóð­ina við áhorf, er að þær verða að slípa burt bitran sann­leik­ann. Þær geta sýnt almúg­ann í óvægnu ljósi en síður valda­stétt­ina, póli­tík­ina, spill­ing­una og stærsta þjófn­að­inn. Nið­ur­staðan verður því oft­ast sama gamla sagan en með eilítið öðru bíti. Nema þið standið ykkur þess betur hér á Facebook. Alla vega er ljóst að þjóðin getur ekki lifað heil­brigðu lífi innan lyga­sögu þeirra sem rændu þjóð­ina af völdum, eignum, auð­lindum og fé. Íslands­sagan sem við lifum innan, sem er bak­grunnur allrar umræðu og frétta, er lygi til að hylma yfir þjófnað.“

Verbúð er á dag­skrá Rúv á sunnu­dags­kvöldum klukkan 21:15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi