Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alma firrir sig ábyrgð vegna ráðningar Sigríðar: „Sýnist spurningarnar eiga heima hjá Landspítala“

Alma firrir sig ábyrgð vegna ráðningar Sigríðar: „Sýnist spurningarnar eiga heima hjá Landspítala“
Alma Möller Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Eins og kom fram í grein á Mannlíf var Sigríður Karls­dóttir lýta­læknir ráðin sem hand­ar­sér­fræð­ingur á LSH.

Kom til að mynda fram í grein­inni ljós­mynd af tíma­bókun hjá Sigríði þar sem hún kallar sig hand­ar­sér­fræð­ing en ekki lýta­lækni; en sér­fræð­ingur í einni grein innan lækn­is­fræð­innar má ekki kalla sig sér­fræð­ing í öðru fagi en menntun við­kom­andi segir til um.

Sjúk­lingur hjá Sigríði komst ekki að þessu fyrr en eftir að hafa geng­ist undir með­höndlun hjá henni.

Mannlíf sendi ítar­lega fyr­ir­spurn á net­föng þeirra sem starfa innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sem gætu mögu­lega hafa borið ábyrgð á ráðn­ingu Sigríðar.

Engin svör bár­ust frá þeim sem Mannlíf sendi spurn­ingar á, en hins vegar svar­aði aðstoð­ar­maður land­læknis, fyrrum blaða­mað­ur­inn Kjartan Njáll Hreins­son, spurn­ing­unum.

Mannlíf sendi í gær á nýjan leik ítar­legan spurn­ing­ar­lista á nokkur net­föng þeirra sem lík­legt að er að hafi komið að ráðn­ingu Sigríðar.

Í dag barst eitt svar, frá Ölmu Möller land­lækni, þar sem hún firrar sig ábyrgð á ráðn­ing­unni og bendir á LSH.

Alma Möller land­læknir. Mynd / Hallur Karlsson

Svar Ölmu við síð­ari spurn­inga­list­anum, sem sjá má hér neðst í grein­inni, var eft­ir­far­andi:

„Komdu sæll Björgvin. Fram skal tekið að Kjartan Hreinn svar­aði fyrir mína hönd þeim spurn­ingum sem voru í fyrri pósti enda er hann aðstoð­ar­maður land­læknis. Ég tók þátt í að semja svörin. Mér sýn­ast spurn­ingar sem þú spyrð í þessum pósti eiga heima hjá Land­spít­ala. Með kveðju, Alma D. Möller, MD, PhD, EMPH.“

Mannlíf bíður eftir svörum frá þeim sem tölvu­póstar voru sendir á, í seinna skiptið var til að mynda sendur tölvu­póstur á nýskip­aðan heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, og ber þessum aðilum að svara spurn­ing­unum með hlið­sjón af upp­lýs­inga­lögum nr. 140/2012.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um málið, og bíður nú eftir svörum við spurn­ingum sem sendar voru á þá sem báru ábyrgð á ráðn­ingu Sigríðar.

Spurn­inga­listi númer tvö:

Komið þið sæl og blessuð.

Ég og rit­stjórn Mannlífs förum fram á að fá svör og upp­lýs­ingar varð­andi þetta mál Sigríðar Karls­dóttur, með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012, þar sem ykkur ber að veita umbeðin svör/gögn.

1. Er ráðn­ing Sigríðar lög­leg, þannig að eng­inn vafi leiki á lög­mæti ráðn­ingar hennar sem lýta­læknis í stöðu hand­ar­skurð­læknis?

2. Hver ber ábyrgð á ráðn­ingu Sigríðar? Var það einn aðili eða fleiri?

3. Fór ráðn­ing­ar­ferlið að öllu leyti fram sam­kvæmt lögum reglum LSH og fór ráðn­ingin í gegnum hæfn­is­nefnd? Með svar­inu þurfa að fylgja gögn sem og rök­stuðn­ingur þannig að eng­inn vafi leiki á því að ekk­ert óeðli­legt eða ólög­legt hafi átt sér stað varð­andi ráðn­ingu Sigríðar.

4. Ef allt var eðli­legt og lög­legt varð­andi þessa ráðn­ingu þá spyr ég: Hvers vegna var lýta­læknir ráð­inn í stöðu hand­ar­skurð­læknis? Voru engir aðrir sér­fræði­mennt­aðir hand­ar­skurð­læknar sem höfðu áhuga og/eða sóttu um starf Sigríðar?

5. Sjúk­lingur sá sem hafði sam­band við Mannlíf er til­bú­inn að koma fram opin­ber­lega undir nafni og með mynd, fáist engin skýr svör frá ykkur sem þessi tölvu­póstur er sendur til. Sjúk­lingur/Skjól­stæð­ingur/Ein­stak­lingur Sigríðar var mjög ósáttur er við­kom­andi komst að því að Sigríður er ekki sér­fræði­menntuð sem hand­ar­skurð­læknir heldur sem lýta­læknir, enda skilst mér á öllu er varðar lög og reglur að sér­fræði­mennt­aður læknir megi alls ekki kynna sig sem sér­fræði­lækni í annarri grein en við­kom­andi læknir stund­aði nám í og útskrif­að­ist. Sjúk­ling­ur­inn fyrr­nefndi hefur fleiri gögn í fórum sínum er varða þetta mál, en við­kom­andi vill ein­fald­lega fá ein­föld og skýr svör, og það vil ég líka, eðli­lega. Hér er spurn­ingin í fimmta lið:

Er rétt eða rangt hjá mér?:

Má sér­fræði­mennt­aður læknir kynna sig sem sér­fræði­mennt­aður læknir í annarri sér­grein en þeirri sem við­kom­andi læknir lagði stund á og útskrif­að­ist úr? Eins og þið vel vitið voru gögn með frétt­inni þar sem skýrt stóð á ljós­mynd að við­kom­andi sjúk­lingur væri að fá tíma hjá Sigríði Karls­dóttur hand­ar­skurð­lækni. Ég bið ykkur vin­sam­leg­ast að svara þess­ari fyr­ir­spurn, sem er með vísan í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012, þar sem ykkur ber að veita umbeðin svör/gögn. Ég og rit­stjórn Mannlífs höfum ekki áhuga á að fá svör frá Kjartani Hreini Njáls­syni eða neinum öðrum nema þeim sem tölvu­póstur þessi er sendur til, og við krefj­umst svara um þetta mál – sem ætti ekki að vera erfitt sé ráðn­ing Sigríðar að öllu leyti – 100% – lög­leg, og hafi farið í gegnum lög­legt ráðn­ing­ar­ferli og í gegnum hæfn­is­nefnd, eins og lög og reglur LSH kveða skýrt á um.

Hér má sjá net­föngin sem þessi spurn­ing­ar­listi var sendur á:

[email protected]

–

[email protected]

–

[email protected]

–

[email protected]

–

[email protected]

–

[email protected]

–

[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi