Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ótti meðal innflytjenda í Finnlandi

„Við höfum hert inn­flytj­enda­stefnu okkar veru­lega.“

Ótti meðal innflytjenda í Finnlandi
Helsinki er höf­uð­borg Finn­lands Inn­flytj­endur í land­inu ótt­ast að vera vísað úr landi. Mynd: Safa Hovinen/Wikipedia

Rík­is­stjórn Finn­lands hefur hert reglur um inn­flytj­enda­mál, sem hefur leitt til mik­illar aukn­ingar í brott­vís­unum og vakið ótta meðal óskráðra inn­flytj­enda sem gætu staðið frammi fyrir hættu­legum aðstæðum í heima­löndum sínum.

Í mið­stöð í Helsinki sem kall­ast „Toivon talo“, eða „Hús von­ar­innar“, þar sem óskráðir inn­flytj­endur utan Evrópu geta fengið lög­fræði­lega, félags­lega og lækn­is­fræði­lega aðstoð, spjalla gestir saman á meðan þeir njóta ókeypis hádeg­is­verðar sem er bor­inn fram flesta daga.

Mið­stöðin, sem er rekin af kristi­legu félagi og sjálf­boða­liðum, veitir aðstoð fólki sem í flestum til­vikum dvelur ólög­lega í Finn­landi eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra hefur verið hafnað eða dval­ar­leyfi eða vega­bréfs­á­rit­anir hafa runnið út eða verið synjað.

„Aðstæður mínar eru mjög, mjög, mjög erf­iðar,“ sagði marokkósk kona á fimm­tugs­aldri við AFP og óskaði nafn­leyndar.

Hún er menntuð í félags­ráð­gjöf og kom til Finn­lands snemma árs 2024 til að leita sér að vinnu, en tókst ekki að finna starf innan 90 daga tíma­bils­ins sem rík­is­borg­arar þriðja heims ríkja mega dvelja án dval­ar­leyfis.

Frá síð­asta ári geta óskráðir inn­flytj­endur ekki sótt um vinnu í Finn­landi heldur verða þeir að gera það frá heima­landi sínu.

„Ég get ekki farið aftur til Marokkó, því ég er nú frá­skilin og þegar fyrr­ver­andi eig­in­maður minn kemst að því að ég sé komin aftur... getur hann orðið árás­ar­gjarn,“ sagði hún og bætti við að henni hefði verið skipað að yfir­gefa landið í nóv­em­ber.

Anne Hammad, verk­efna­stjóri hjá Húsi von­ar­innar, sagði við AFP að hún hefði séð fjölgun fólks á mið­stöð­inni sem ótt­að­ist brott­vísun frá því að hægri­st­jórn Finn­lands, sem tók við árið 2023, hóf að herða reglur um inn­flytj­enda­mál. Margir væru í við­kvæmri stöðu og oft ugg­andi yfir því að snúa aftur til heima­landa sinna af ýmsum ástæðum, bætti hún við.

Frá jan­úar til sept­em­ber 2025 voru um 2.070 erlendum rík­is­borg­urum úr landi, sem er 30 pró­sent aukn­ing miðað við sama tíma­bil árið 2024, sam­kvæmt finnsku lög­regl­unni.

Yfir­lög­reglu­þjónn­inn Janne Lepsu sagði að réttur útlend­inga til dvalar í land­inu væri nú „rann­sak­aður mun ítar­legar“.

„Ef í ljós kemur að útlend­ingur hefur ekki þennan rétt, verður allt gert til að tryggja að hann yfir­gefi Finnland eða Schengen-svæðið,“ sagði hann.

Engar opin­berar tölur liggja fyrir um hversu margir óskráðir ein­stak­lingar dvelja í Finn­landi, en áætlað er að þeir séu á bil­inu 3.500 til 5.000 á und­an­förnum árum.

„Stefnubreyting“

Síðan árið 2023 hefur Finnland haft strang­ari skil­yrði fyrir veit­ingu hælis, dval­ar­leyfa, fjöl­skyldu­sam­ein­inga og rík­is­borg­ara­réttar, þó landið taki vel á móti vinnu­aflsinn­flytj­endum.

Markmið rík­is­stjórn­ar­innar er að stjórna betur inn­flytj­endum, efla öryggi inn­an­lands og sam­ræma finnsku inn­flytj­enda­stefn­una öðrum Norð­ur­löndum.

„Við höfum hert inn­flytj­enda­stefnu okkar veru­lega. Við getum lík­lega jafn­vel talað um stefnu­breyt­ingu í þessum efnum,“ sagði inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Mari Rantanen við AFP.

Nokkur önnur ESB-ríki hafa einnig hert stefnu sína í inn­flytj­enda­málum á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta