Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tugum kvenna bjargað úr vændi á vinsælum áfangastað Íslendinga

Und­ir­heim­arnir hafa verið opn­aðir upp á gátt

Tugum kvenna bjargað úr vændi á vinsælum áfangastað Íslendinga
Santa Cruz de Tenerife Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: lindasky76/Shutterstock

Lögregla Spánar hefur upp­rætt skipu­lagða glæp­a­starf­semi sem stóð að kyn­lífs­þrælkun á suð­ur­hluta Tenerife. Alls var 27 konum bjargað, þar á meðal nokkrum undir 18 ára aldri, og voru 14 ein­stak­lingar hand­teknir, þar á meðal tveir sem taldir eru leið­togar hóps­ins.

Rannsókn máls­ins hófst í júlí 2024 eftir að deild lög­reglu, sem sinnir stuðn­ingi við fórn­ar­lömb mansals, barst tölvu­póstur með ábend­ingu um málið.

Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar ferð­uð­ust leið­togar glæpa­sam­tak­anna reglu­lega til nokk­urra landa í Suður-Ameríku, þar sem þeir beindu sjónum sínum að ungum konum sem bjuggu við mikla fátækt. Þeim var lofað atvinnu og betra lífi en við komu til Spánar tók við kyn­ferð­is­leg mis­notkun.

Konurnar voru látnar taka á sig skuldir sem gátu numið allt að 3.000 evrum og var þeim gert að greiða þær með því að veita kyn­lífs­þjón­ustu. Þær voru hýstar í litlu hús­næði með öðrum fórn­ar­lömbum og sættu ströngum reglum og stöð­ugu eft­ir­liti.

Þótt kon­urnar hefðu sam­þykkt að ferð­ast til Spánar í þeirri trú að þær myndu starfa sem dans­arar á nekt­ar­klúbbum, kom fljótt í ljós að raun­veru­leik­inn var annar þegar inn í klúbbana var komið. Lögregla segir að þær hafi verið neyddar til að vinna langan vinnu­dag, beittar þrýst­ingi til að neyta fíkni­efna og í sumum til­vikum verið byrluð lyf án vit­undar til að draga úr hömlum þeirra.

Við rann­sókn­ina fund­ust jafn­framt vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­lega mis­notkun barna á skemmti­stöð­unum. Þar fannst meðal ann­ars 16 ára stúlka með fölsuð skil­ríki.

Málið er enn til rann­sóknar að sögn lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta