Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grikkir banna börnum að nota samfélagsmiðla

Grikkir banna börnum að nota samfélagsmiðla
Barn í snjall­síma Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Shutterstock

Grikk­land hyggst banna aðgang barna yngri en 15 ára að sam­fé­lags­miðlum frá og með 1. jan­úar 2027, að því er for­sæt­is­ráð­herr­ann Kyriakos Mitsotakis til­kynnti í dag.

Í mynd­skeiði sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum TikTok sagði Mitsotakis að um væri að ræða „erf­iða en nauð­syn­lega aðgerð“. Mark­miðið væri ekki að halda börnum frá tækni almennt, heldur að sporna gegn ofnotkun til­tek­inna for­rita sem geti haft nei­kvæð áhrif á þroska þeirra, frelsi og vellíðan.

„Ég veit að sum ykkar munu verða ósátt,“ sagði hann og bætti við að rann­sóknir bentu til þess að langvar­andi skjá­tími hefði skað­leg áhrif á heila barna.

Grikk­land er meðal fyrstu ríkja í heim­inum til að grípa til slíkra aðgerða. Mitsotakis kvaðst jafn­framt hyggj­ast beita sér fyrir því að Evr­ópu­sam­bandið taki upp sam­bæri­legar reglur á vett­vangi sam­bands­ins.

Þróunin í Grikk­land er í takt við aukna umræðu á alþjóða­vett­vangi um áhrif sam­fé­lags­miðla á börn og ung­menni. Ástralía varð í des­em­ber fyrsta ríkið til að skylda fyr­ir­tæki á borð við TikTok, YouTube og Snapchat til að fjar­lægja aðganga not­enda yngri en 16 ára, ella sæta háum sektum.

Einnig hafa yfir­völd í Indónesíu hafið fram­kvæmd sam­bæri­legs banns fyrir not­endur yngri en 16 ára og þegar gripið til aðgerða gagn­vart tækni­fyr­ir­tækjum eins og Google og Meta vegna meintrar van­efnda á lög­unum.

Í Aust­ur­ríki stendur til að leggja fram frum­varp um bann við notkun sam­fé­lags­miðla fyrir börn allt að 14 ára aldri síðar á þessu ári. Þá hafa Spánn og Danmörk einnig lýst yfir áformum um að setja svo­kall­aðan staf­rænan lög­ræð­is­aldur fyrir notkun sam­fé­lags­miðla.

Aðgerðir þess­ara ríkja end­ur­spegla vax­andi áhyggjur stjórn­valda víða um heim af áhrifum staf­rænnar tækni á yngstu kyn­slóð­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta