Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi

Settu met í fyrra

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi
Mohammed bin Salman í Hvíta Húsinu Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Hvíta Húsið

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö ein­stak­linga af lífi á einum degi vegna fíkni­efna­smygls, að því er þar­lendir fjöl­miðlar greindu frá í dag

Samkvæmt frétta­stof­unni voru fimm sádíar­ab­ískir rík­is­borg­arar og tveir jórdanskir menn sak­felldir fyrir að smygla amfetamíntöflum inn í landið. Fram kom að dauða­refs­ingin hefði verið fram­kvæmd sem svokölluð val­bundin refs­ing, og að aftök­urnar hefðu farið fram á Riyadh-svæð­inu.

Frá upp­hafi árs 2026 hafa yfir­völd í Riyadh tekið 38 manns af lífi vegna fíkni­efna­tengdra brota, sem er meiri­hluti þeirra 61 aftaka sem fram­kvæmdar hafa verið á árinu, sam­kvæmt sam­an­tekt AFP byggðri á opin­berum gögnum. Erlendir rík­is­borg­arar eru í meiri­hluta þeirra sem teknir hafa verið af lífi á árinu, alls 33 ein­stak­lingar.

Árið 2025 náði fjöldi aftaka meti annað árið í röð þegar 356 manns voru teknir af lífi, þar af 243 vegna fíkni­efna­brota. Þetta er hæsti árlegi fjöldi frá því Amnesty International hóf skrán­ingu slíkra mála í kon­ungs­rík­inu árið 1990. Fyrra met, 338 aftökur, var sett árið 2024.

Sádí-Arabía hóf á ný að beita dauða­refs­ingu fyrir fíkni­efna­brot í lok árs 2022, eftir um þriggja ára hlé á slíkum refsi­að­gerðum.

Notkun dauða­refs­ingar í rík­inu hefur sætt við­var­andi gagn­rýni mann­rétt­inda­sam­taka, sem telja hana óhóf­lega og í and­stöðu við til­raunir stjórn­valda til að kynna landið sem nútíma­legra og opn­ara sam­fé­lag. Að mati gagn­rýnenda grefur áfram­hald­andi beit­ing dauða­refs­ingar undan umbóta­á­ætl­unum krón­prins­ins Mohammed bin Salman, sem miða að félags­legum og efna­hags­legum breyt­ingum í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta