Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð

Þegar lög­regla hugð­ist hand­taka menn­ina kom til skot­bar­daga milli þeirra og lög­reglu­manna

Stálu 100 kílóum af kjúklingi úr flutningabíl á ferð
Þvílíkur þjófn­aður! Mynd: Skjáskot

Þrír menn lét­ust í skot­bar­daga við lög­reglu í Egypta­landi eftir að hópur manna stal 105 kílóum af kjúklinga­kjöti úr vöru­flutn­inga­bíl á ferð á hrað­braut í Kaíró. Þrír aðrir voru hand­teknir í aðgerðum lög­reglu.

Myndband af þjófn­að­inum hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum. Þar sjást tveir menn færa kassa úr vöru­flutn­inga­bílnum yfir í pall­bíl á meðan bæði öku­tækin eru á ferð. Atvikið hefur verið borið saman við atriði úr hasar­mynd­unum Fast & Furious.

Ökumaður vöru­flutn­inga­bíls­ins sagði lög­reglu að um fjögur tonn af kjúklinga­kjöti hefðu verið í bílnum. Hann varð ekki var við þjófn­að­inn þegar hann átti sér stað en upp­götv­aði síðar að 105 kíló vant­aði úr farm­inum.

Inn­an­rík­is­ráðu­neyti Egypta­lands greindi frá því að rann­sókn máls­ins hefði leitt lög­reglu á slóð sex manna sem allir hefðu áður komið við sögu lög­reglu.

Þegar lög­regla hugð­ist hand­taka menn­ina kom til skot­bar­daga milli þeirra og lög­reglu­manna. Þrír hinna grun­uðu lét­ust í átök­unum en hinir þrír voru hand­teknir.

Lögregla lagði jafn­framt hald á skot­vopn og öku­tækið sem talið er hafa verið notað við þjófn­að­inn.

Málið hefur vakið tals­verða athygli í Egypta­landi, ekki síst vegna þess hversu óvenju­leg og hættu­leg aðferðin við þjófn­að­inn var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta