SkoðunStjórn SolarisAðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki28. apríl 2025 Því hefur lengi verið haldið fram að það skipti máli hver séu við stjórnvölinn þegar horft er til þess hvernig samfélög virka, hvort lýðræði ríki og réttindi fólks séu virt og hvort jöfnuður og réttlæti sé til staðar. Í því samhengi hefur oft verið horft til þess hvernig samfélag og valdhafar koma fram við þau sem eru jaðarsett. Þannig hafa...
SkoðunÓlafur Ágúst HraundalFangelsismál í skugga minnimáttarkenndar27. apríl 2025 Nýjar áætlanir um byggingu 100 manna fangelsis á Stóra-Hrauni, sem á að leysa af hólmi elsta og stærsta fangelsi landsins Litla-Hraun, virðast ætla að verða enn eitt dæmið um hálfkák og skammtíma hugsun í íslenska fangelsiskerfinu. Nýja fangelsið á að rúma 100 fanga, með möguleika á að bæta við 28 rýmum. En þegar litið er til hve langur biðlisti eftir...
SkoðunGuðmundur Ingi ÞóroddssonAlvarleg staða frelsissviptra einstaklinga26. apríl 2025 Afstöðu hafa borist upplýsingar um að tugir einstaklinga sem bíða brottvísunar frá Íslandi séu vistaðir jafnvel vikum saman í fangageymslum lögreglu við óviðunandi aðstæður. Þar eru þeir oft einangraðir án reglubundinnar útivistar og í sumum tilvikum handjárnaðir við svokallað „belti" þegar þeir fá takmarkaða útivist. Þessir einstaklingar hafa ekki framið refsiverð brot, en eru engu að síður vistaðir undir aðstæðum...
SkoðunBjörn Leví GunnarssonLögin eru fyrir hina - Að vera þingmaður: 2. kafli18. apríl 2025 Á undanförnum árum hefur ítrekað verið lögð fram tillaga til þingsályktunar um óréttmæti málshöfðunar Alþingis gegn ráðherrum og afsökunarbeiðni þar sem meðal annars stendur Niðurstaða landsdóms sýnir að ekki var tilefni til ákæru. Þetta er afskaplega undarleg fullyrðing miðað við að niðurstaða málsins var að ráðherra hafði gerst brotlegur.Ef það væri rétt, að ekki hafi verið tilefni til ákæru þrátt...
SkoðunÓlafur Ágúst HraundalGestapómenning í skjóli öryggis17. apríl 2025 Það ríkir undarleg kyrrð í samfélaginu gagnvart þróun sem ætti að vekja upp háværar viðvörunarbjöllur. Lögregluyfirvöld og þá sérstaklega ríkislögreglustjóri virðast nú á ferðinni með að festa í sessi vald sem skerðir borgaralegt frelsi og dregur úr gagnsæi, án ábyrgðar. Nýlega var Finnbogi Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn greiningardeildar ríkislögreglustjóra, á Bylgjunni. Þar fór hann með hræðsluáróð í anda “vók” að reyna að...
SkoðunGuðný NielsenÁkall til Valkyrjanna16. apríl 2025 Kæru Valkyrjur, Þið eruð íslenskar konur. Engar aðrar konur í heiminum búa við jafnmikil réttindi og þið. Engar. Þið sitjið á þjóðþingi í einu friðsamasta landi heims. Þið eruð ráðherrar í ríkisstjórn í vellauðugu landi. Vopnaðar öllum þessum forréttindum og allri þeirri vernd sem íslenskt samfélag veitir ykkur, kjósið þið samt að hvísla. Vitið þið hver kjósa að tala upphátt?...
SkoðunDavíð Már SigurðssonFyrir hvern?16. apríl 2025 Nú stendur til að útvíka skilyrði til framhaldsnáms. Nú er ekki lengur aðalmálið að gera gott mót, leggja á sig og læra. En fyrir hvern er þetta frumvarp? Þann sem lagði á sig að læra jafnt og þétt í gegnum sín tíu ár í grunnskóla, sinnti heimanámi, mætti til að gera sitt besta eftir fremsta megni. Nei takk, það er...
SkoðunBjörn Leví GunnarssonLagalegri ábyrgð stungið ofan í skúffur sögunnar - Að vera þingmaður: 1. kafli4. apríl 2025 Við getum ekki fengið hreinskilið og heiðarlegt uppgjör. Við höfum ekki enn fengið uppgjör á hruninu, covid, sölu Íslandsbanka, og það nýjasta sem við munum líklega aldrei fá uppgjör á eru viðbætur við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Viðbætur sem veita Bandaríkjaher aukna heimild til aðgerða hér á landi án þess að Alþingi hafi samþykkt það. Hvað þýðir þetta eiginlega? Jú,...
SkoðunGuðmundur Ingi ÞóroddssonRúmir 30 milljarðar í fangelsi3. apríl 2025 Mikil óvissa ríkir um hvort og hvenær nýtt fangelsi muni rísa á Stóra-Hrauni, eins og hugmyndir hafa verið um hjá stjórnvöldum. Upphaflega var gert ráð fyrir að kostnaður við framkvæmdir á s.k. Stóra-Hrauni á Eyrarbakka (við hlið Litla-Hrauns) næmu um 7 milljörðum króna. Þær áætlanir hafa, samkvæmt nýjum upplýsingum, breyst verulega. Nú er gert ráð fyrir að kostnaður við fangelsið...
SkoðunDavíð Már SigurðssonPíp Test – Við hvað ertu hræddur?2. apríl 2025 Í gegnum mína grunnskólagöngu, þegar skólaíþróttir hétu leikfimi og það var ennþá í lagi að kenna sund þá var tekið próf í Píptesti. Mér fannst gaman að hlaupa og fannst alveg skemmtilegt að taka prófið en ég skil fullvel af hverju öðrum fannst það minna skemmtilegt. Hafa örugglega fengið svipaðan hnút í magan og ég fékk í stafsetningarprófum eða hlustunaræfingum...
SkoðunSkírnir GarðarssonUm hótanir og lágmenningu26. mars 2025 Almannaréttur er sá réttur sem almenningi er áskilinn í lögum til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn. Þannig eru nú lög um náttúruvernd og almannahagsmuni borgaranna, sett til að tryggja rétt almennings til frjálsra ferða án þess að eiga á hættu að fá á sig hótanir um lögregluaðgerðir. Ef hins vegar sveitastjórar, oddvitar eða...
SkoðunSigvaldi EinarssonGervigreind og lífsgæði: Getur Ísland orðið fyrirmyndarríki framtíðarinnar?10. mars 2025 Gervigreind er ekki bara tækni – hún er hluti af lífi okkar Á hverjum degi notar fólk gervigreind án þess að átta sig á því. Við treystum á hana þegar við leitum á netinu, notum raddstýringu í snjallsímum, fáum ráðleggingar um fjármál eða nýtum AI-stýrð leiðsögukerfi. En þessi bylting er rétt að byrja. Spurningin sem Ísland þarf að svara er...
SkoðunFriðrik AtlasonHvað gerðist, Gylfi?8. mars 2025 Í dag er 8. mars sem er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Til hamingju konur með daginn. Þetta er ykkar dagur. Þessi pistill er þó ekki um konur, en ég held að hann sé samt gott innlegg í kvennabaráttuna. Ein baráttan sem þarf að halda á lofti er baráttan gegn hvers kyns ofbeldi gegn konum. Því alltof algengt er að karlar beiti...
SkoðunAðsend greinKannski fannst þeim starfið ekki nógu gefandi?25. febrúar 2025 Davíð Már Sigurðsson skrifar Hvernig má það vera að fólk sé tilbúið að eyða að lágmarki fimm árum af lífi sínu til þess að mennta sig, útskrifast og hugsa svo með sér. Nei veistu þetta er bara ekki fyrir mig. Allt þetta frí og veikindaréttur er að sliga mig. Þetta virðist samt vera sá raunveruleiki sem skólakerfið glímir við. Og...
SkoðunDavíð Már SigurðssonKannski fannst þeim starfið ekki nógu gefandi?25. febrúar 2025 Davíð Már Sigurðsson kennari skrifar um kennarastarfið.