
Sænski stórleikarinn Alexander Skarsgård verður meðal gesta í Bíó Paradís í dag, þar sem hann mætir á sérstaka sýningu kvikmyndarinnar Pillion klukkan 13:30.
Heimsókn hans tengist dvöl á Íslandi undanfarna daga, þar sem hann hefur verið við tökur á nýju sjónvarpsverkefni.
Fyrir sýninguna gefst gestum kostur á að hitta leikarann í óhefðbundnu formi, en dagskráin hefst klukkan 13:30 og myndin sjálf klukkan 14:00.
Þrjár myndir tengdar Skarsgård-fjölskyldunni í sýningu
Bíó Paradís sýnir í dag þrjár kvikmyndir sem tengjast Skarsgård-fjölskyldunni. Auk Pillion verða sýndar myndirnar Sentimental Value, þar sem faðir hans Stellan Skarsgård fer með hlutverk, og Dead Man’s Wire, með bróður hans Bill Skarsgård.
Samkvæmt Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra Bíó Paradísar, sem Mannlíf ræddi við, er það „algjör tilviljun“ að þessar þrjár myndir séu allar á dagskrá sama dag.
Sérstakar reglur í gildi
Gestir eru beðnir um að fylgja leiðbeiningum starfsfólks og tekið er fram að myndatökur verði ekki leyfðar á viðburðinum.
Sætaframboð er takmarkað og nánari upplýsingar verða veittar við inngang.

Komment