1
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

2
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

3
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

4
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

5
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

6
Heimur

Lögregla rannsakar dauða hunds sem fékk íbúprófen

7
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

8
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

9
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

10
Innlent

Bíl ekið á hús

Til baka

Katla Sólnes hlýtur virtan Hollywood-styrk

Katla er fyrst Norðurlandabúa til að hljóta viðurkenninguna

Katla Sólnes
Katla SólnesKatla er einn efnilegasti handritahöfundur Norðurlandanna
Mynd: Alda Valentína Rós

Íslenski handritshöfundurinn og leikstjórinn Katla Sólnes hefur hlotið einn virtasta handritsstyrk heims, svonefndan Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar, fyrir handrit að kvikmynd í fullri lengd.

Styrkurinn er veittur af Kvikmyndaakademíunni í Hollywood og felur í sér bæði viðurkenningu á hæfileikum höfundar, auk handleiðslu og aðgangs að víðtæku tengslaneti innan kvikmyndaiðnaðarins.

Katla er jafnframt fyrsti handritshöfundurinn frá Norðurlöndunum sem hlýtur styrkinn frá upphafi, en hann hefur verið veittur frá árinu 1986.

Hún útskrifaðist með MFA-gráðu frá Columbia-háskóla í New York árið 2024 og hefur áður vakið athygli fyrir verk sín, meðal annars með viðurkenningum frá Alfred P. Sloan-sjóðnum. Þá var hún einnig valin í Sundance Screenwriters Lab, eina virtustu handritasmiðju heims.

Nicholl-styrkirnir hafa í gegnum tíðina reynst mikilvægur stökkpallur fyrir handritshöfunda. Meðal fyrri styrkþega er Susannah Grant, sem skrifaði síðar kvikmyndina Erin Brockovich og hlaut Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir handritið.

Í ár var nýtt alþjóðlegt valkerfi tekið upp, þar sem yfir 500 meðlimir Akademíunnar komu að mati handrita í samstarfi við 40 kvikmyndaskóla og fagstofnanir víðs vegar um heiminn. Aðeins tveir aðrir handritshöfundar og tvö handritsteymi hlutu styrkinn að þessu sinni.

Í tilkynningu Akademíunnar segir að hópur styrkþega sé „óvenju sterkur, fjölbreyttur og alþjóðlegur hópur nýrra höfunda sem endurspegli framtíð frásagnarlistar“.

Handrit Kötlu ber vinnutitilinn Og jörðin klofnaði alelda (Eruption) og gerist á Íslandi snemma á áttunda áratugnum. Sagan fjallar um hjónaband tveggja jarðfræðinga sem fer að reyna á þegar metnaðarfullur starfsnemi frá Bandaríkjunum kemur inn í líf þeirra.

Framleiðsla myndarinnar verður í höndum Antons Mána Svanssonar fyrir framleiðslufyrirtækið STILL VIVID. Anton hefur áður komið að framleiðslu á kvikmyndum á borð við Hvítur, hvítur dagur, Hjartasteinn og Volaða land.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun
Pólitík

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

„Það virðist vera stefna núverandi ríkisstjórnar að sverfa að eldra fólki“
Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi
Sport

Sörloth fær líflátshótanir eftir mistök gegn Englandi

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið
Heimur

Trump ræddi við Lindsey Graham skömmu fyrir andlátið

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“
Viðtal
Fólk

„Ég man ennþá bragðið af byssuhlaupinu“

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein
Fólk

Safnar fyrir æskuvinkonu sem glímir við árásargjarnt brjóstakrabbamein

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe
Heimur

Maður handtekinn grunaður um morðið á Ann Widdecombe

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“
Heimur

Lindsey Graham látinn eftir „stutt og skyndilegt veikindakast“

Pentagon birtir ný UFO-gögn
Myndband
Heimur

Pentagon birtir ný UFO-gögn

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland
Heimur

Zelensky stofnar sérstaka herdeild til langdrægra árása á Rússland

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst
Heimur

Ann Widdecombe var látin í tæpan sólarhring áður en lík hennar fannst

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“
Viðtal
Fólk

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“
Einkaviðtal
Fólk

„Mínir líkar deyja yfirleitt ungir“

Menning

Heyannir á Árbæjarsafni
Myndir
Menning

Heyannir á Árbæjarsafni

Sýnt verður hvernig hey var slegið með ljá, rakað með hrífum og unnið með handafli
Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Una Torfa verður í Vesturbænum
Menning

Una Torfa verður í Vesturbænum

Loka auglýsingu