1
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

2
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

3
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

4
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

5
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

6
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

7
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

8
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

9
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

10
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Til baka

Andrew er sagður kenna tveimur fjölskyldumeðlimum um allt

„Hann er staðfastur í þeirri trú að hann geti og muni hreinsa mannorð sitt“

Andrew fyrrum prins
Andrew Mountbatten-WindsorAndrew er æfur út í bróður sinn og frænda
Mynd: JUSTIN TALLIS / AFP

Andrew Mountbatten-Windsor hafnar alfarið þeim ásökunum sem hafa verið bornar á hann og er sagður telja tvo meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar bera ábyrgð á þeirri stöðu sem hann er nú í. Samkvæmt heimildum er hann afar ósáttur við hvernig komið hefur verið fram við hann eftir að hann var sviptur titlum sínum og gert að yfirgefa heimili sitt í Royal Lodge.

Vinur Andrews segir, Richard Eden, sérfræðingi í konungsfjölskyldunni, að hinn fyrrverandi prins sé sannfærður um að hann hafi orðið fyrir ranglæti. „Hann er staðfastur í þeirri trú að hann geti og muni hreinsa mannorð sitt,“ er haft eftir heimildarmanninum.

Þetta kemur í kjölfar þess að Andrew var handtekinn í febrúar og færður til yfirheyrslu vegna gruns um misferli í opinberu starfi, en honum var síðar sleppt á meðan rannsókn málsins heldur áfram.

Richard Eden skrifar í Daily Mail að þrátt fyrir að Karl III hafi haldið áfram að styðja bróður sinn fjárhagslega og boðið honum afnot af fimm svefnherbergja húsinu Marsh Farm á Sandringham-eigninni í Norfolk, upplifi Andrew það sem svik. Að hans mati beri konungurinn sjálfur ábyrgð á því sem hann kallar harðneskjulega og ósanngjarna meðferð.

Samkvæmt vini hans lætur Andrew reiðina oft bitna á fleiri en konunginum einum og ræðst einnig á erfingja krúnunnar, Vilhjálmi prins, í heiftarlegum útrásum. Hann er sagður verja stórum hluta dagsins í að krauma af gremju gagnvart fjölskyldu sinni og loka sig af frá umheiminum.

Mikil reiði Andrews tengist einkum því að hann missti heimili sitt í Royal Lodge, sem þrátt fyrir að vera tiltölulega hóflegt miðað við aðrar konunglegar hallir, með um 30 herbergjum, var honum afar kært. Í samanburði nýtur systir hans, Anna prinsessa, bæði Gatcombe Park í Gloucester-skíri og íbúðar í St. James’s Palace, á meðan bróðir hans Eðvarð prins býr á Bagshot Park, sem talið er hafa um 120 herbergi.

Royal Lodge vakti einnig athygli áður þegar Andrew sýndi Ghislaine Maxwell og Jeffrey Epstein húsið í tengslum við grímuball sem haldið var árið 2006 í tilefni af 18 ára afmæli dóttur hans, Betu Dísar. Á þeim tíma hafði Epstein þegar verið í brennidepli bandarískra yfirvalda.

Andrew sagði síðar í viðtali við BBC Newsnight að hann hefði ekki haft vitneskju um brot Epsteins þegar boðið var sent út. Hann kvaðst ekki hafa áttað sig á alvarleika málsins fyrr en fjölmiðlar tóku að fjalla um það.

Þótt ljóst hafi verið um hríð að Andrew myndi þurfa að flytja úr Royal Lodge, stóð honum til boða annað og veglegra húsnæði áður en Marsh Farm var endanlega valið. Um tíma var talið líklegt að hann flytti í Frogmore Cottage, fyrrverandi heimili Harry prins og Meghan Markle, sem hafði verið endurnýjað með aðstoð innanhússhönnuðarins Vicky Charles. Einnig var rætt um að Adelaide Cottage, fyrrum heimili prinsins og prinsessunnar af Wales, kæmi til greina.

Að lokum var þó ákveðið að Andrew myndi setjast að í Marsh Farm, húsi á jaðri Sandringham-eignarinnar, þar sem hann mun nú búa í mun hógværari aðstæðum en áður.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum
Myndir
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

Húsið var byggt árið 1932
Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta
Innlent

Sjö gistu fangageymslur lögreglu en ekkert að frétta

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki
Myndir
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

Maður grunaður um að myrða tvíbura
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

Segir það hafa gerst fyrir um það bil 20 árum
Nemandi grunaður um morðtilraun í skólanum
Heimur

Nemandi grunaður um morðtilraun í skólanum

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

Maður grunaður um að myrða tvíbura
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi
Heimur

Yfirvöld í Sádí-Arabíu tóku sjö manns af lífi á einu degi

Loka auglýsingu