
Kona í Moskvu var myrt í síðustu viku af manni sem talið er að hafi verið blekktur af símasvikahröppum til að halda að hann væri að framkvæma lögregluaðgerð. Frá þessu segir Meduza.
Atvikið átti sér stað að kvöldi 13. mars í íbúð konunnar í rússnesku höfuðborginni. Lík hennar fannst daginn eftir. Samkvæmt yfirvöldum hafði öryggisskápur í íbúðinni verið brotinn upp og unglingsdóttir konunnar hafði, án þess að vita betur, hleypt árásarmanninum inn eftir að svikarar sögðu henni að hann væri lögreglumaður.
Sá grunaður var handtekinn skömmu síðar. Um er að ræða 20 ára mann frá Kislovodsk, sem hefur verið nafngreindur í rússneskum miðlum sem Daniil Sekach en hann hefur undanfarið leikið knattspyrnu hjá Ural FC í Katrínarborg. Rannsóknarnefnd Rússlands birti 15. mars myndband þar sem hann sést í haldi lögreglu og við yfirheyrslu. Þar lýsir hann því hvernig honum hafi verið skipað að brjótast inn í öryggisskápinn og myrða eigandann.
Samkvæmt rannsakendum höfðu svikararnir haft samband við hann meira en mánuði áður en árásin átti sér stað. Þeir þóttust vera lögregluyfirvöld og sögðu honum að hann myndi sjálfur sæta sakamálarannsókn ef hann fylgdi ekki fyrirmælum þeirra.
Þann 13. mars mætti hann á staðinn með slípara, kúbein, sleggju og fleiri verkfæri. Sextán ára dóttir konunnar var ein heima og hafði einnig verið blekkt af svikahröppunum, sem fengu hana til að hleypa „fulltrúa“ inn í íbúðina.
Eftir að hann komst inn byrjaði hann að vinna að því að brjóta upp öryggisskápinn og sendi stúlkuna niður til að hitta móður sína og segja henni að „njósnafulltrúi“ væri við störf í íbúðinni.
Skömmu síðar kom móðirin heim og reyndi að stöðva manninn. Eftir að hafa krafist lykilorðs að skápnum réðst hann á hana, barði hana og stakk hana að minnsta kosti tvisvar. Hún lést á vettvangi.
Árásarmaðurinn braut að lokum upp skápinn og tók rúmlega 2.000 dollara (um 250.000 krónur) auk annarra verðmæta. Að fyrirmælum svikaranna kastaði hann síðan öllu út um glugga. Hann hélt áfram að vera í íbúðinni og hélt dótturinni þar til næsta dags, þegar honum var sagt að yfirgefa staðinn.
Hin látna hefur verið nafngreind sem hin 48 ára Yekaterina Chuchupalo. Eiginmaður hennar var í vinnuferð í Miðausturlöndum þegar atvikið átti sér stað. Hjónin eiga tvær dætur og var sú yngri sú sem varð fyrir barðinu á svikunum.
Samkvæmt rússneskum miðlum hafði Yekaterina starfað við fasteignaviðskipti og síðar stofnað eigin skóla þar sem hún kenndi námskeið um gervigreind og netvinnu. Hún safnaði einnig mynt frá tímum Katrínar miklu.
Sá grunaði, Sekach, er atvinnumaður í knattspyrnu og hafði sagt liðsfélögum sínum að hann væri á leið til Moskvu vegna háskólamála. Hann hefur verið ákærður fyrir morð, játað brotið og lýst yfir iðrun. Saksóknarar munu fara fram á að hann verði úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir réttarhöld.

Komment