1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

7
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar

„Þessar fullyrðingar eru ekki bara ærumeiðandi óhróður, heldur ósannindi“

Dimma 2
Dimma eftir tónleika
Mynd: Ingólfur Geirdal/Facebook

Ingólfur Geirdal, meðlimur Dimmu og aðrir meðlimir hljómsveitarinnar, eru mjög ósáttir við Stefán Jakobsson og yfirlýsingu hans en hann hætti í hljómsveitinni á Facebook í fyrradag.

Í færslu sem Stefán, fyrrverandi söngvari Dimmu, birti á samfélagsmiðlum sakaði hann Silla Geirdal um að hafa tekið stöðu með manni sem kærði Stefán til lögreglu fyrir líkamsárás en Stefán var sýknaður í vikunni í Héraðsdómi. Við þetta sætti hann sig ekki og hætti í hljómsveitinni í kjölfarið.

Dimma hefur nú svarað færslu Stefáns.

„Stefán Jakobsson birti nýverið yfirlýsingu á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum þar sem hann ber Silla Geirdal og eiginkonu hans þungum sökum. Þessar fullyrðingar eru ekki bara ærumeiðandi óhróður, heldur ósannindi,“ skrifar Ingólfur fyrir hönd sveitarinnar.

„Stefán fullyrðir að Silli og eiginkona hans hafi frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn honum og kennt honum um þessar ófarir. Það er rangt. Þau reyndu þvert á móti bæði í sitthvoru lagi að koma á samtali og sáttum milli beggja aðila, strax í upphafi. Stefán hafnaði því alfarið og sagði að málið yrði að fara sína leið,“ heldur tónlistarmaðurinn áfram.

„Þar sem báðir aðilar tengdust þeim hjónum (annars vegar fjölskylduböndum og hinsvegar vinaböndum) og aðilum bar ekki saman um málsatvik, voru þau hjónin sett á milli steins og sleggju og báðu um að þau væru ekki dregin inn í þessar deilur. Því var svarað af Stefáni og eiginkonu hans með blokkunum á samfélagsmiðlum, útskúfun og kröfum frá Stefáni að eiginkona Silla kæmi ekki baksviðs á tónleikum sveitarinnar. Það gerði andrúmsloftið ekki auðveldara fyrir neinn og á endanum sprakk samstarfið,“ skrifar Ingólfur.

„Silli er einn af stofnmeðlimum DIMMU og hefur undanfarin ár séð um umboðsmennsku og rekstur sveitarinnar auk annarra starfa. Ef hann hefði tekið skýra afstöðu gegn Stefáni, hefði samstarfinu verið sjálfhætt strax í upphafi. Þvert á móti hélt Silli áfram að bóka tónleika, hljóðblanda og klippa myndefni og hanna auglýsingar ásamt eiginkonu sinni, þar sem Stefán var oftar en ekki hafður í forgrunni eins og áður. Enda er það staðreynd að enginn hefur lagt á sig meiri vinnu við tónleikauppsetningu, upptökur, auglýsingar og hönnun fyrir Stefán Jakobsson og Dimmu en einmitt Silli og frú,“ skrifar rokkarinn mikli um málið

„Við bræður trúðum því að styrkur DIMMU lægi í heildinni og við ættum allavega 10 góð ár eftir saman. Ljóst er nú að svo verður ekki en að slíta samstarfinu með því að dreifa óhróðri og úthúða fyrrum samstarfsfólki sínu í fjölmiðlum er ekki bara ljótt, heldur óheiðarlegt,“ heldur hann áfram.

„Ásetningurinn er augljós; að búa þannig um hnútana að við fyrrum samstarfsfélagar hans eigum okkur varla viðreisnar von. Og ljóst er að það eru margir sem eru tilbúnir að hoppa á vagninn með heykvíslana hátt á lofti, án þess að heyra aðrar hliðar málsins. En með þessu kastar Stefán ekki bara rýrð á þau 23 ár sem DIMMA hefur starfað, heldur sérstaklega þau 15 ár sem hann var með okkur,“ segir hann.

„Við óskum Stefáni velfarnaðar og vonandi getur hann látið af því í framtíðinni að draga okkur inn í sín mál og gera að blórabögglum í fjölmiðlum. Okkar leiðir hafa skilið og það hlýtur að vera hægt að leyfa okkur að lifa í friði, þó ekki væri nema bara af virðingu við þær fjölmörgu góðu minningar og tónlistarlegu arfleifð sem við sköpuðum saman,“ skrifar Ingólfur að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu