1
Heimur

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn

2
Heimur

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð

3
Fólk

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu

4
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

5
Heimur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

6
Heimur

17 létust í umferðarslysi

7
Heimur

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi

8
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

9
Heimur

Fundu lík 12 ára drengs við árbakka í Frakklandi

10
Heimur

270 kílóa ísskápur féll á grínista

Til baka

Stebbi Jak hættir í Dimmu með látum

„Ég kýs að umvefja mig fólki sem er nærandi en ekki ærandi og tærandi.“

Stebbi Jak
Stebbi JakStebbi hefur yfirgefið Dimmu
Mynd: Facebook

Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, söngvari hljómsveitarinnar DIMMU, hefur ákveðið að segja skilið við sveitina eftir 15 ára starf. Ákvörðunin kemur í kjölfar sýknudóms í líkamsárásarmáli og langvarandi álags sem hann segir hafa haft djúp áhrif á líf sitt.

Í færslu á Facebook greinir Stefán frá því að málið hafi staðið yfir í tvö og hálft ár og haft veruleg áhrif á hann og hans nánustu. „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissutíma með skýrum sýknudóm vegna ákæru um líkamsárás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttirinn að fá þetta staðfest er ólýsanlegur,“ segir hann.

Hann lýsir því jafnframt að sá aðili sem lagði fram kæruna hafi á sama tíma beitt hann og fjölskyldu hans ítrekuðu áreiti og hótunum:

„Í tvö og hálft ár hefur þessi maður beitt mig og fólkið í kringum mig gengdarlausu ofbeld. Má þar nefna fyrrverandi sambýliskonu gerandans, lögfræðinginn minn og eiginkonu mína. Gerandinn hefur hótað mér og mínum óteljandi oft, auk þess sem hann hefur áreitt okkur ítrekað í gegnum sms og tölvupósta.“

Samkvæmt Stefáni náðu hótanirnar einnig til barna hans og tengdra aðila, auk þess sem haft hafi verið samband við vinnustaði og skóla barnanna. Hann segir málið ítrekað hafa verið tilkynnt til lögreglu án þess að gripið hafi verið til aðgerða sem stöðvuðu áreitið.

„Allt hefur þetta verið tilkynnt til lögreglu án þess að nokkuð hafi verið að gert og afleiðingarnar þar af leiðandi engar fyrir gerandann. Okkur var í eitt skipti sagt að hann hefði verið handtekinn og settur í klefa, sem ætti að róa slíka menn. Það var þó ekki vegna hótana í minn garð eða í garð míns fólks, heldur vegna hótana sem hann sendi á almennt netfang dómsmálaráðuneytisins.“

Tengir brotthvarf við stöðu innan hljómsveitarinnar

Í færslunni tengir Stefán ákvörðun sína um að hætta í DIMMU einnig við samskipti innan sveitarinnar. Hann segir að tengsl milli aðila í málinu og fjölskyldu bassaleikara sveitarinnar hafi haft áhrif á samstarfið.

„Umræddur maður sem ég vísa til sem geranda í þessu máli er tengdur eiginkonu Silla Geirdal, sem er bassaleikari DIMMU. Eiginkonan á svo og rekur markaðsfyrirtæki, þar sem gerandinn er skráður sem starfsmaður.“

Stebbi heldur áfram:

„Silli og eiginkonan hans hafa frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn mér í þessu máli þrátt fyrir að hafa átt við þau ítrekuð samtöl, sem hafa snúist um það að gerandinn er veikur einstaklingur sem augljóslega þarf á aðstoð að halda, kusu þau að setja kíkinn fyrir blinda augað og kenna mér um ófarir þessa manns. Þannig var því haldið fram að ég og mitt fólk söfnuðum hótunum hans saman, einungis með það í huga að geta náð okkur niður á honum síðar. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það að við svona aðstæður er ómögulegt að eiga nokkurt samstarf eða samtal. Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins,“ skrifar hann og bætir við að við slíkar aðstæður hafi reynst ómögulegt að viðhalda samstarfi.

Þung ákvörðun eftir 15 ár

Stefán segir ákvörðunina hafa verið erfiða, enda hafi hann starfað með hljómsveitinni af heilum hug í mörg ár:

„Ég hef starfað með DIMMU af heilum hug í 15 ár. Eftir okkur liggja heilsteyptar plötur, tónleikar og gleðistundir sem skipta þúsundum.“

Hann þakkar jafnframt stuðning aðdáenda í gegnum tíðina og segist ætla að horfa fram á veginn:

„Ég kýs að umvefja mig fólki sem er nærandi en ekki ærandi og tærandi. Ég hlakka því til þess sem framtíðin ber í skauti sér.“

Stefán lýkur færslunni á orðum um mikilvægi þess að sleppa takinu þegar aðstæður krefjast þess og segir ákvörðunina hluta af því að vera sjálfum sér trúr.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar
Sport

Höttur dregur sig úr Gatorade-bikarnum vegna ferðakostnaðar

„Þetta er veruleiki sem félög á landsbyggðinni þurfa reglulega að glíma við“
Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar
Heimur

Fullyrðir að Sarah Ferguson og Diddy hafi verið bólfélagar

Nokkrir látnir eftir að lest klessti á skólarútu í Belgíu
Heimur

Nokkrir látnir eftir að lest klessti á skólarútu í Belgíu

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi
Heimur

Sérfræðingar vara við nýju pungtrendi

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki
Peningar

Fyrrum Luxor-meðlimur stofnar fyrirtæki

Leitin að hinum tveggja ára Lucas sameinaði heilt samfélag
Heimur

Leitin að hinum tveggja ára Lucas sameinaði heilt samfélag

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi
Myndir
Fólk

Selja hrífandi einbýli í Kópavogi

Óþekktur fauti braut rúðu
Innlent

Óþekktur fauti braut rúðu

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök
Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök

Innlent

Kínverji ákærður
Innlent

Kínverji ákærður

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 30. júní
Óskað aðstoðar vegna átaka
Innlent

Óskað aðstoðar vegna átaka

Óþekktur fauti braut rúðu
Innlent

Óþekktur fauti braut rúðu

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök
Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök

Fleiri berklasmit á Landspítalnum
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

Loka auglýsingu