1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

7
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Fékk nálgunarbann á kærasta og lýsir rauðu flöggunum

„Ég vil ekki bera þetta ein lengur,“ segir Elísa

Elísa W. Elínar
Elísa Wilke ElínarElísa vill skila skömminni
Mynd: Aðsend

Elísa Wilke Elínar hefur stigið fram og greint frá langvarandi áreiti og ógnandi hegðun af hálfu fyrrverandi kærasta síns, en hún segir málið hafa staðið yfir í um ár. Hún hefur kært manninn til lögreglu og fengið á hann nálgunarbann.

Í samtali við Mannlíf segir Elísa, sem starfar sem rennismiður, að sambandið hafi aðeins staðið í þrjá mánuði en snemma hafi komið fram merki um óheilbrigt mynstur.

„Við erum saman í þrjá mánuði í fyrra og hann fer að sýna furðulega hegðun, svona stjórnun og hálfgert andlegt ofbeldi. Það var mjög mikið drama í gangi, þessir venjulegu litlu hlutir verða allt í einu alveg rosa miklir, springa og verða mjög miklir. Og þar sem ég hafði áður verið í ofbeldissambandi sá ég þetta rauða flagg og hætti með honum.“

Ógnandi hegðun og ítrekað áreiti

Eftir sambandsslitin segir Elísa að áreitið hafi haldið áfram. Hún rifjar upp atvik í júlí þegar maðurinn mætti óboðinn heim til hennar, til að sækja dót sem hann átti hjá henni:

„Þannig að fjórða júlí, ég gleymi aldrei þessum degi. Þá mætir hann heim til mín eftir að ég bað hann um að gera það ekki, og er mjög ógnandi... Svo þegar ég reyni að loka hurðinni byrjar hann að skalla hurðina og neitar að leyfa mér að loka henni.“

IMG_7831
Mynd: Aðsend

Að hennar sögn urðu synir hennar, sjö og tíu ára á þessu ári, vitni að hluta af þessum átökum, sem leiddi til þess að barnavernd kom að málinu. Hún kærði manninn í janúar, en segir áreitið ekki hafa stöðvast.

„Þetta byrjaði sem sagt og var verst í júlí en svo eru bara endalaus skilaboð og hringingar en ég svara þessu aldrei,“ segir hún og bætir við að skilaboðin hafi komið frá mismunandi prófílum:

„Svo blokka ég og þá er bara búinn til nýr prófíll.“

IMG_7837
Mynd: Aðsend

Í desember hafi áreitið aukist verulega:

„Í desember byrjar þetta að verða mjög mikið, einhverra hluta vegna. Allt í einu rjúka upp skilaboðin og þvælan.“

IMG_7835
Mynd: Aðsend

Hún segir innihald skilaboðanna sveiflast frá afsökunarbeiðnum yfir í hótanir:

„Eitt skipti baðst hann afsökunar á að hafa hraunað yfir mig, eitt skipti sagði hann „ég elska þig og sakna þín“ og og svo er þetta komið út í „ég var að fá mynd af þér fáklæddri og er að fara að senda þann mann til himnaríkis“ og „það er hættulegt fólk á eftir þér og það er verið að tala illa um þig.“ Bara alls konar. Það er bara allt gert til þess að stuða mig svo ég svari.“

IMG_7833
Mynd: Aðsend
IMG_7834
Mynd: Aðsend

Lögregla kölluð til um helgina

Málið náði hámarki um síðustu helgi þegar maðurinn kom aftur að heimili hennar. Elísa segist hafa opnað með dyrasíma í þeirri trú að um væri að ræða vin hennar sem ætlaði að kíkja í heimsókn:

„Þá kemur hann upp og segir „ekki loka, það er hættulegt fólk á eftir þér“ og ég loka hurðinni strax. Þá byrjar hann að berja á hurðina og er með öskur og læti og vekur nágrannann.“

Hún hafði áður kært manninn og því hafði hún beint samband við lögreglu. „Og af því að ég kærði hann í janúar er ég kominn með krækju á númerið hjá lögreglunni þannig að það komu nokkrir lögreglubílar. Svo kom rannsóknarlögreglan, Barnavernd, Féló og lögmaður.“

Maðurinn komst undan af vettvangi en var handtekinn síðar sama kvöld. Daginn eftir fékk Elísa nálgunarbann á hann.

„Mjög hættulegur maður“

Samkvæmt Elísu höfðu lögregluyfirvöld þegar safnað gögnum vegna endurtekinna tilkynninga hennar:

„Af því að eftir kæruna, hélt hann áfram að senda á mig skilaboð og ég sendi það alltaf á lögregluna. Þannig að þeir voru þá komnir með alveg mál fyrir því [nálgunnarbanninu]. Og þetta er mjög hættulegur maður, samkvæmt lögreglu. Því hann á sögu af miklu ofbeldi og eltihrelli og allt svona.“

Hún segir einnig að fleiri hafi lent í manninum og að sameiginlegir vinir hafi þurft að loka á hann á Facebook vegna hótana.

Hrædd en ákveðin

Aðspurð hvort hún óttist um öryggi sitt segir Elísa:

„Jú. Ég er mjög hrædd en ég neita að lifa í hræðslunni lengur.“

Hún segir sig hafa gott bakland og að henni hafi verið boðið athvarf ef þörf krefur, bæði úti á land og í borginni. Lögregla hafi einnig boðið henni neyðarhnapp, sem hún ætlar sér að þiggja.

Vildi ekki bera þetta ein

Elísa greindi fyrst frá málinu í færslu á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem hún sagði:

„Síðasta ár hefur verið andlega mjög erfitt hjá mér enda þurft að takast á við umsáturseinelti, áreiti og ógnandi hegðun frá fyrrum kærasta.“

Hún bætti við:

„Ég vil ekki bera þetta ein lengur og skammast mín.“

Í samtalinu við Mannlíf segir hún markmið sitt með því að stíga fram vera að hjálpa öðrum í svipaðri stöðu

„Maður má ekki bera þetta einn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu