
Í dagbók lögreglu frá í nótt og í gær var greint frá því að tilkynnt hafi verið nytjastuld á bifreið. Bifreiðin fannst og voru tveir aðilar vistaðir vegna málsins.
Tilkynnt var um aðila í annarlegu ástandi til vandræða á veitingastað í miðborginni. Þeim var í kjölfarið vísað burt.
Þá fékk lögreglan tilkynningu um minni háttar líkamsárás í miðborg Reykjavíkur og er málið til rannsóknar.
Lögreglan vísaði burt einstaklingum sem höfðu komið sér fyrir í stigagangi en viðkomandi voru í annarlegu ástandi og tengdust húsinu ekki neitt.
Tilkynnt var um barn með vopn og fíkniefni utandyra. Barnið fannst og var lagt hald á hamar, hnúajárn og fíkniefni. Málið var leyst á lögreglustöð með aðkomu barnaverndar.
Þá voru nokkrir teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.
Komment